Vekjarinn - 01.12.1903, Síða 13

Vekjarinn - 01.12.1903, Síða 13
13 sem ekki vissu hvað um var að vera inni, sálminn: „Upp, gleðjist a.llir, gieðjist þjer.“ Yertu sæl, þúsundsinnum sæl elsku konan mín. Þú varst sólargeislinn, sem Drottinn gaf mjer, og aðstoð mín ótal sinnum, en nú nýtur þú eilífrar gleði við hástól lambsins. —Jeg stóð reyndar eptir með fimm móðurlaus börn, en samt get jeg vitn- að það Guði til dýrðar, og öllum harmþrungnum til uppörvunar, að þrátt fyrir öll tárin, voru jólin okkur, börnunum mínum og mjer, full af huggun og blessun. Hetjan af Júdaætt styrkti mig svo dá- samlega, að jeg gat vitnað um jóladýrðina daginn eptir, á jóladagihn, og þótt bæði jeg og söfnuðurinn felldi fleiri tár í það skipti en vant var við jóla- ræðu, fundum við enn betur en opt áður, hvað jólaboðskapurinn var dýrðlegur. — — Góður Guð hefur og styrkt mig dásamlega til að ala upp börn- in mín síðan, og annast þau. Og nú eru þau orð- in kristnir menn og konur. Sje það Guðs vilji, verða ekki dagar mínir margir úr þessu, í þessum spillta heimi. Síðan jeg hafði 70 ár að baki er jeg alltaf að búast við að hver jólin verði mín síðustu hjer niðri, og er að vona að Drottinn muni kalla mig einmitt um jólin eins og dóttur mína og konuna mina. Jeg hef opt beðið hann um að mega fara á jólanóttu, sje það viiji Iians. Annars verð jeg glaður hvonær som burtfarar dagur minn kemur, þogar jeg má fara hoim til DrottiiJS niíus, sem jeg hef reynt að vitna

x

Vekjarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.