Vekjarinn - 01.12.1903, Blaðsíða 47

Vekjarinn - 01.12.1903, Blaðsíða 47
47 Ilganda heitir ríki eitt í miðri Suðurálfunni, og er þar römm hjáguðadýrkun, Stanley kom þangað 1875, og skrifaði samkvæmt tilmælum heiðna kon- ungsins eptir kristniboðum til Englands. Brjefið var 7 mánuði á leiðinni, en þremur dögum eptir að það var prentað, var búið að gefa 90 þúsund krónur til trúboðs í Uganda. Skömmu síðar iögða 8 fyrstu trúboðarnir af stað, en óhollt loptslag og ofsóknir heiðinna manna styttu þeim og mörgum fleiri aldur. Samt tóku nokkrir heiðingjar trú. En um og eptir 1885 geysaði ofsókn gegn þeim og þá var dauða- sök á Uganda að kunna að lesa, því að það lærðu þeir ekki annars staðar en hjá trúboðunum. Þá |. horfði óvænlega fyrir trúboðið þar í landi, og þá reiknuðu vantrúar-mennirnir í kristnu löndunum, sem ekki voru vanir að rjetta neinum hjálparhönd, hversu mikið fje og mörg mannslíf hefðu farið „til ónýtis“ í Uganda. En reynslan hefur sýnt nú, hvað þessháttar reikningar eru fjarri sanni, þar sem gjört er ráð fyrir að jafnlítið muni verða framgengt „næstu ár eins og að undanförnu" og þar sem verið er að meta sálir manna til peninga. Ef þú ert efabland- inn þá íhuga þessar tölur: 1893 voru um 500 skírðir heiðingjarí Uganda en 1903: 30 þúsund, 1893 var Þar ein kirkja en 1903: 700 kirkjur og kristileg fund- arhús, 1893 voru 20 innlendir trúhoðar að breiða út kristindóm, en 1903 rúm 200; 1893 var kristin- dómurinn alveg ókunnur í nágrannalöndunum, en nú kosta krístnir menn í Uganda sjálflr trúboð í þremur nágrannalöndum.

x

Vekjarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.