Vekjarinn - 01.12.1903, Qupperneq 22

Vekjarinn - 01.12.1903, Qupperneq 22
22 sem óttast ekki og sefur ekki, hann sjer gegnum þokuna, og hönd hans brýtur tennur villudýranna. Kallið á hann; hann mun koma. Leitið augna hans, augnatillit hans á að vera sól ykkar. Grípið um klæðafald hans, og hann mun leiða ykkur þangað, sem hvorki er þoka, hætta nje kvíði. Frelsuð, frelsuð, hvílík gleði!" V. Þannig talaði Lúther og hann hjelt enn áfram nokkra stund. Hann var í þeirra tölu, sem börn verða ekki þreytt að hlusta á. ímyndunarafl hans gaf hverri hugsun mynd, og hjarta hans gaf svo þessari mynd ómótstæðilegt aðdráttarafl og líf. B örn in urðu vör við kærleika hans til sálna þeirra svo að segja í hverju smáorði. Orðið segir líka „af gnægð hjartans mælir munnurinn," og hver skyldi nokkru sinni hafa haft dýpri og sannari tilfinningu fyrir kærleika Guðs í Jesú Kristi? Þótt Lúther væri voldugur og mikils virtur, fann hann engu síður til gleði syndarans, sem hefur fengið frelsi, og var hinn auðmjúkasti meðal hinna trúuðu. Hjarta hans var fullt af lofsöngum til hins krossfesta frelsara og um ' jólin til barnsins í Betlehem. — Hann elskaði Jes- úm fremur en flestir aðrir menn, og hafði betra- lag á að koma öðrum til að elska hann en flestir aðrir. — Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann. „Börnin mín. Ljósin eru bráðum slokn- uð; þið hafið fengið gjafirnar en jeg veit um einn, sem bíður. Pessi eini —„Það er Jesús," sögðu

x

Vekjarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vekjarinn
https://timarit.is/publication/500

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.