Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 6
1U2 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. fumi, höfðu hátt og töluðu um það, að það þyrfti að hefna þeirrar smánar, er kirkjan hefði orðið fyrir, með alt annað en vaegum orðum. »Hvað gengur hér á?« sagði Fílammon við stillilegan og myndarlegan borgara, sem stóð þar forviða og horfði upp í glugga patríarkans. »Spurðu einhvern annan en mig: eg er ut- an við það alt; en því kemur ekki sá heilagi herra út og talar við þá? Blessuð guðsmóðir — betur að þetta væri vel til lykta leitt.« »Við þurfum ekki fólkið í lið með okkur,« grenjaði einhver í hópnum, »við höfum sigr- að fanta áður og getum líklega sigrað Órestes líka. Hvað kemur okkur það við hverju hann svarar? Djöfullinn verður að fá sitt.« »Þeir hefðu getað verið komnir fyrir tveim stundum. Rað er líklega búið að drepa þá,« æpti annar. »Nei, ekki þora þeir að snerta erkidjáknann.* »Hann þorir alt. Kyrillos hefði ekki átt að senda þá eins og sandi á meðal úlfa. Hvað svo sem Aá á því að láta landstjórann vita, að Gyðingar væru farnir veg allrar veraldar. Eg held hann hefði orðið var við það undireins og hann þurfti á peningum að hálda.« *Hvað gengur hér á, æruverðugi herra?« sagði Fílammon við Pétur lesara; hann kom í þessum svifunum skálmandi inn í garðinn og réði sér ekki fyrir reiði. »Hvað? Ert þú hér,« sagði Pétur, »þú getur farið á morgun, bjáninn þinn.' Patríark- inn má ekki vera að því að tala við þig. Pví ætti hann líka að vera að því? Ef þú ert ekki orðinn vitlaus, þá geturðu farið á morgun og látið gera þig vitlausan. Við sjáum það hvort ið er á endanum altaf, að það er satt, að hver sem sjálfan sig upphefur, hann mun niður- lægjast.x Hann sneri sér frá; en Fílamon greip í handlegg honum og mátti þá búast við hann yrði enn reiðari en áður. »Hinn heilagi herra hefur boðið mér að koma til sín, herra, áður en — ♦ Pétur sneri sér heiptarlega að honum: »Ætl- ar þú, asninn þinn, að fara að ónáða hann með heilaspunanum í þér?« »Hann hefur skipað mér að koma til sín,« svaraði Fílammon, samkvæmt hinum ströngu hlýðnisreglum munkanna, »og svo fer eg til hans, hvað sem hver segir. Eg fer að halda að þú viljir meina mér að njóta ráða hans og blessunar.c Pétur hvesti heiptarlega á hann augun, barði hann af öllu afli í andlitið með hnefan- um og æpti á hjálp. Hefði Fílammon fengið þetta högg í Lára- klaustrinu svo sem viku áður, hefði hann þolað það. En að þola það af þessum manni eins og áher7lumerki ofan á alt, sem hann hafði orðið að þola af honum — það gat hann ekki. Hann hljóp undir Pétur, og í sama vetfangi lá Pétur þar á steinstrætinu, prjónaði löngu fót- unum upp í Ioftið og grenjaði á hjálp af öll- um mætti. Tíu eða tólf magrar og mórauðar hendur höfðu þegar tekið tökum á Fílammoni, þegar Pétur brölti á fætur. »Takið hann, takið hann,« másaði hann, »haldið honum.« »Hann er svikari! Hann er trúarvillingur! Niður með hann! Hann hefur samneyti með heiðingjum! Út með hann! Farið með hann til erkibiskupsins!* Petta hróp drundi við úr öllum áttum meðan Fílammon sleit af sér munk- ana. En Pétur hélt áfram: »Eg kalla alla rétt- trúaða menn til vitnis um, að hann hefur mis- þyrmt helgum manni rétt fyrir framan dyrnar á húsi drottins, rétt í þér miðri, Jerúsalem. Og hann var í áheyrnarsal Hypatíu í morgun.« Guðræknislegur skelfingarkur fór um hópinn. Fílammon hafði múrinn að baki sér og mælti: »Hinn heilagi herra sendi mig þangað.« »Hann meðgengur, hann meðgengur,« æpti Pétur, »hann hefur leikið á hinn heilaga herra, svo að hann hefur lofað honum að fara. Hann hefur talið honum trú um, að hann ætlaði að kristna hana. Og nú ætlar hann að troða sér inn í helgidóminn í kringum Kyrillos, og log- ar þó upp af holdlegum girndum og langar

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.