Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Page 7

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Page 7
JAKOB ÆRLEQUR. 223 unni. Sumum hásetanum, sem ekki voru synd- ii", lá við druknun, svo varaforingi varð að setja út bát til þess að slæða þá upp; svo náðust þeir allir upp aftur. »Hann ’er altaf fremstur í flokki með alla hrekki, strákskrattinn,« sagði kapteinninn við varaforingja; »fylgið foringjanum* — það get- ur stundum orðið nógu gott. Látið Tuma Be- aseley koma.« Við héldum allir að Tumi væri búinn að vera. »Heyrðu, kunningi,« sagði kapteinninn, »leikur er leikur, en það eru ekki allir eins vel syndir og þú. Eg hef ekki ráð á að missa menn fyrir gapaskapinn úr þér. Gerðu þetta ekki aftur. Eg óska þess ekki.« Öllum þótti Tumi sleppa vel — en .það v‘ssu líka allir, að hann var eftirlætisgoð kap- teinsins. *Bið forláts, herra,« svaraði Tumi með uPPgerðar auðmýkt; »en mér sýndust þeir svo skitnir, þegar þeir voru búnir að sverta s,g v>ð skorsteininn, að mér fanst ekki veita að skola af þeim.« »Já, farðu og mundu, hvað eg hef sagt,« sagði kapteinninn, sneri sér undan og glotti svo skein í tennurnar. En varaforingjann heyrði eg segja við kap- teininn: »Hann er vel á við tíu aðra háseta í skipinu, strákurinn. Hann heldur þeim kátum °g fjörugum og gengur á undan þeim með góðu eftirdæmi.« ÁTJÁNÐI KAPITULI. Meiri æfintýri. Eg losast. Einn daginn var Tumi að klifrast upp í reiða, 0g æpti hátt: >Skip, ó-hó.« »Sagt til skips.« »Hvar?« sagði varaforingi. »Undir sól.« *Elpp hærra—sérðu það ?« *Já, herra, eg held það sé skonnorla, en eg sé ekki lengra en ofan að stjórnrá.« »Pað er einn þeirra,* sagði kapteinninn, »hver sá hana?« »Tumi Beaseley.« »Altaf er hann heppinn sá strákur —nú verð eg að gefa honum fimm gíneur í fundarlaun. Hvernig er hún útlits, WiIson?« »Lág skonnorta, svört, tortryggileg. Eg get ekki séð portin, en eg býzt við hún hafi góð- ar tennur. Hún liggur kyr í logninu eins og við.« »Svo verðum við að blístra eftir byr. En við skulum samt vera við öllu búnir, hr. Knight (varaforinginn).« Ef nógu lengi er blístrað, kemur byrinn, og hann kom að stundu liðinni. En skonnort- an hafði horfið oss í myrkrinu eftir sólarlag- ið. í dögun sást hún nálægt því í fjögra mílna fjarlægð í norðvestri; það var eg sem sá hana og flýtti mér að segja til þess. Pegar birti mátti sjá að hún hafði sextán fallbyssur og var því óárennilegt að ráða á hana með bátum, og lágum við svo viðbúnir með árarnar á lofti. Um hádegið fór ögn að kula, en þó lítið, svo leið til kl, eitt, en ekki kom byrinn. Svo lét kafteinninn bátana fara. Rérum við svo nærri að við komumst í skot- færi kaparans, og lét hann þegar heila hliðar- hryðju skella á okkur með stórum kúlum. Kúl- urnar fluttu kerlingar yfir bátana og við bjugg- umst altaf við að vérða fyrir þeim. í sömu svifum bar hæga golu yfir; hún fylti segl skonn- ortunnar, svo að fjarlægðin jókst, en svo féll golan og við færðumst nær. Skonnortan sner- ist enn við okkur og fór að skjóta. Ein kúlan kom í bátinn, sem eg var í, braut gat á hann og særði tvo menn sem voru næstir mér. í bátnum var bæði fallbyssa og skotfæri; fyltist hann þegar af þunganum og hvolfdi, og einn drengur fórst, en hinir komu úr kafinu og héldu sér í bátinn. Hinir særðu menn urðu skjótt máttvana af blóðmissi, sleptu tökum og sukku, en hinum öllum bjargaði sá af okkar bátum, er nær var. Eg hafði fengið tréflís inn í vinstri hand- legginn á mér, og þó eg héngi lengur á bátn-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.