Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Síða 17

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Síða 17
UNDRAMALMURINN RADIUM. 233 þrjá flokka, og hefur hver flokkaana fengið nafn eftir grískum stöfum œ (alfa), B (beta) og V (gamma). Til þess að geislaröðin skiljist betur hefur frú Curie teiknað myndina, sem hér fer á eftir, sem táknar hvernig geislarnir haga sér undir áhrifum segulmagns. Radíum í Iítlu blýhylki og geislarnir, sem út frá þvi stafa. — A B liggur í segulfleti (Magnetisk Plan). Alfageislarnir beygjast lítið eitt til hliðar °g eiga því bágt með að komast í gegnum Þétta líkama, geta t. d. hvorki komizt í gegn- um pappír né gler. Ef radíumsalt er geymt í glerhylki, þá komast engir alfageislar út. Und- *r beru lofti hverfa þeir svo fljótt, að í fárra sentimetra fjarlægð hafa þeir enga verkun. Rannsóknii síðustu ára hafa leitt í ljós, að alfa- geislarnir eru smáagnir (elektrónur) hlaðnar með pósitívu rafmagni, en þessar agnir eru a stærð við vatnsefnisatóm, og þeytast út frá radíumsatóminu með 28000 kílómetra hraða á sekúndu. Retta hefur þótt sæta miklum tíð- 'ndum. Efnafræðingurinn Crooks hefur upphugsað h'tið verkfæri, sem spinthariskóp kallast. Rað er mjög einfalt og er í því ofurlítil málmnál, sem hangir niður í upplausn af radíumssalti. ^ verkfærið er látið í nánd við plötu, sem Þakin er með lýsandi brennisteinssinki, í myrkri, N má í stækkunargleri sjá yfirborð hennar 'iómandi af ótal smálogum, sem kvikna og slokna aftur á víxl. Retta eru smáagnir alfa- geislanna, sem þeytast á móti plötunni og framleiða eilífar eldglæringar þegar smáagnirn- ar kastast gegn brennisteinssinkinu. Ef platan er *ærð hl fáeina sentimetra fækkar neistunum; og við takmörk geislaáhrifanna, sjást aðéins örfá stjörnuhröp. — Þetta fyrirbrigði hefur verið útskýrt á þá leið, að radíumatómin séu stöðugt að splundrast í sundur í ótal smá- parta, og með mjög hugvitssömum aðferðum hefur tekizt að telja þessa smáparta, og niður- staðan er sú að 1 gramm af radíum þeytir frá sér hérumbil 136 millíarða af alfasmápörtum á hverri sekúndu. Rað er að kenna smáögnum alfageislanna að radíum brennir frá sér, þar sem það snertir eitthvað. Komi radíum við hörund, veldur það djúpum og illkynjuðum brunasárum. Betageislarnir hafa að ýmsu leyti öldungis gagnstæða náttúru við alfageislana. Peir eru samsettir af smápörtum eða elektrónum, sem eru hlaðnir með negatívu rafmagni. Þeir þeyt- ast út frá radíumatóminu með feikna flýti. Eins og myndin sýnir, hafa þeir mismun- andi stefnu, sumir bogna meira, en sumir minna. Hinir síðarnefndu eru hraðastir, næstum eins og sólargeislarnir, en þeir sem mest bogna hindrast á göngu sinni af þunnu aluminium- blaði, þar sem hinir géta komist í gegnum margra millímetra þykka málmplötu. Pessi hæfileiki þeirra að geta farið í gegnum önnur efni er að líkindum að þakka því hvað flýtir þeirra er mikill og smápartarnir litlir. Pað hefir verið reiknað út, að hver smá- partur sé V2000— Viooo partur af stærð vatns- efnisatómsius, og hefur eðlisfræðingurinn Kauf- mann því til skýringar bent á, að ein betaögn sé í hlutfalli við eina bakteríu eins og baktería við jarðarhnöttinn. Gammageislarnir, sem geisla bein.t út og verða ekki fyrir áhrifum neins segulmagns, eru að öllum líkindum ekki efniskendir, heldur bylgjuhreyfingar í eternum, sem framleiðast af hinum smágjörvu betaelektrónum. Reir eru öllum hinum geislunum fremri í því að kom- ast í gegnum önnur efni, því þeir geta farið í gegnum margra sentímetra þykt blý, og menn hafa fundið að fáein sentígrömm af brómradíum senda geisla í gegnum 30 sentí- metra þykka járnplötu. 30

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.