Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Qupperneq 18

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Qupperneq 18
234 NYJAR KV0LDV0KUR Radíum er hið eina af þeim efnum, sem menn nú þekkja, sem án finnanlegra ytri á- hrifa greinir stöðugt frá sér rafmagn. Radíum er ennfremur sjálflýsandi og að þessu leyti einstætt i sinni röð, þar sem það sjálfkrafa, án þess að nokkur birta hafi á það fallið, getur í sífellu framleitt ljós. Ljósið kemur ekki einung- >s frá yfirborði þess, heldur frá öllu efnismagni þess, og er jafngreinilegt í 200° frosti eins og við vanalegan hita. Radíum er ennfremur frábrugðið öllum öðr- um efnum í því, að það framleiðirsjálfkrafa og stöðugt hita. Sölt þess eru nokkrum gráðum heitari en umhverfið, og 1 gramm af radíum framleiðir hérumbil 100 hitaeiningar (kalóríur) á klukkutíma. Ef að hver 1000 kílógrömm af sólinni hefðu inni að halda 2^/a gr. af radíum, þá væri það nóg til að samsvara allri hitaútgeisl- un sólarinnar. Menn hafa fundið radíum í stjörnusteinum (meteórum) og af því er víst, að það hlýtur að vera í himinhnöttunum. Ef mikið væri af radíum á jörðinni, þá hlyti jörðin að vera heitari en hún er; bendir þetta á að lítið sé af radíum á jörð vorri. Geislamögnun. *) (Induceret radíóaktívitet). Sérhver hlutur í nánd við radíum eða radíum- sölt verður eftir nokkurn tíma radíóaktív, eða geislamagnaður og tekur að senda frá sér geisla, jafnvel þó hluturinn verði ekki beint fyrir radíumgeisluninni og þó að engar radíutn- agnir geti með ryki borist á hlutinn. Ressi mögnun geislanna er þó aðeins um stundarsakir. Um leið og hluturinn sendir frá sér geislana, eyðist hæfileikinn, þar sem hins- vegar radíum sýnist geta stöðugt sent frá sér geisla. Rannsóknir Curie’s og Rutherford’s benda á að hlutirnir, sem fyrir áhrifunum verða, séu á yfirborðinu, huldir ósýnilegri slæðu af áhrifamiklu efni. Með viðkvæmustu vog er eigi unt að finna að hlutirnir þyngist, og með skörpustu smásjá er ekki hægt að sjá neinar agnir; en það sem bendir á að hér sé um efn- *) Sbr. segulmögnun það, að segulmagna t. d. jám: isslæðu að ræða er það, að éiginleikinn hverf- ur ef að hluturinu er núinn með rýju eða sandpappír. Eins fer ef sterk saltsýra eða brenni- steinssýra verkar á yfirborð hlutarins. Pó’hverf- ur ekkert, heldur leysast efnisagnirnar upp í sýrunum, því ef þær eru látnar gufa upp, þá verður seinast eftir geislandi afgangur, sem hverfur við upphitun. Þessi fjarvirku áhrif, sem streyma út frá rad- íum í allar áttir iíkt og hiti út frá ofni hafa menn kallað emanatíón, þ. e. útstreymi. Sé radíumsalt eða upplausn þess geymd í luktu íláti t. d, glerhylki, þá ljómar loftið í glerhylkinu og veggir þess fá radiumshæfileika. Sé glerhylkið opnað, þá breiðist útstreymið út um alt herbergið og stöðvast við veggina, sem fá radíumsverkanir eins og alt annað. Ef hármjó pípa liggur útúr glerhylkinu, þá streymir emanatíónin út með flýti, sem er í réttu hlutfalli við vídd pípunnar og gagnstæðu hlutfalli við lengd hennar, en það er sama lögmálið og öll loftkend efni fylgja. Einnig í öðrum eiginleikum hagar eman- atíónin sér eins og loftefni. Hún leysist upp í vökvum, eins og t. d. vatni, og síðan er hægt að rýma henni burt með suðu. Ennfremur helst hún, þó glerhylkið kólni niðri 150° frost og Ijómar eftir sem áður. Að öllu samtöldu leiðir þetta oss til að skoða emanatíónina eins og ósýnilegt loftefni, hlaðið með pósitivu raf- magni, sem streymir stöðugt út frá radium, og þetta loftefni legst yfir alla hluti, sem það kemur í nánd við, eins og nokkurskonar dala- læða, sem gæðir hlutina sömu verkunum og radíum hefur. Vegna rafmagnseiginleika emanatíónarinnar getum vér nú fundið radíum, þó mjög lítið sé til af því. Slikar rannsóknir hafa nú leitt í ljós að radíum er víðasthvar í jarðskorpunni, því emanatíón hefur fundizt á yfirborði jarðarinnar bæði niðri við sjó og uppi á fjöllum, en einkum niðrí brunnum og djúpum gryfjum. Emanatíónin kemst uppúr jörðinni, þó hún sé þakin þykkum ís og snjó. Næstum allar uppsprettulindir flytja með

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.