Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Side 24

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Side 24
240 NYJAR KVÖLDV0KUR. Og reynum að halda í horfinu vel því hugarins fleyinu veika, þó móti oss standi oft stormur og él, frá stefnunni látum ei skeika, en öllu því ryðjum sem ekki er hreint og innbyrðis má ekki hæfa; og lærum að reyna, þó sæum of seint að samtaka-máttur er gæfa. Sigurður Pálsson. Dúfan. Aður út um glugga arkardúfan smaug, hulin skýja skugga skelfd um loftið flaug. Ekkert laufblað eygði, aðeins bylgjuflóð; inn í örk sér fleygði aftur vegamóð. Er vor augu líta ekkert vonarstrá, horfa’ á brimið hvíta hafi tímans á; ótt vor önd þá flýgur yfir bylgjuflóð, Guðs að hjarta hnígur hrædd og vegamóð. S. S. Búmannsþula. Fátækir þegar byrja bú bresta vill efnin flést: Jörðina, stúlku, ker og kú, kvikfénað, reipi og hest; fötu, trog, ausu, steðja og strokk, stelpu, sem hirðir fé, laupana, kláfa, reizlu og rokk, rekkvoðir, kodda og beð; skaröxi, hamar, sög og sekk, sil, bækur, klyfberann, skinnklæði, leður, röskan rekk, reku, pál, torfskerann; hrífu, orf, kláru, hefilbekk, hundrakka viljugan; kistu þarf líka, kopp og nál, kerald og heykrókinn, askana, reiðing, skafa og skál, skyrgrind, pott, vefstólinn, vetlinga, prjóna, snældu og snúð, snúist á kvörnum mél, baðstofu þá með brattri súð, bæði þarf spón og skel, hnakk og söðui, með klafa á kú, kamb og vinstur, sem drýgir bú; hnappeldu, vöggu, beizli og bönd, brýni, hníf, járn og tré; síu og kamb, — um svarðarlönd, sízt mun þá blómgast fé. — Hvíli eg mína haukaströnd; hvað hef eg nú í té? » * * * » * * * • Þulu þessa lærði eg mjög ungur af gömlum manni, sem hafði lært hana í æsku, en var ó- kunnugt um höfund hennar; en líklega er hún ort á Suðurlandi. Af því mér virðist þulan að sumu leyti talsvert merkileg, og af því, að hún hefur líklega aldrei verið prentuð áður, datt mér í hug að láta prenta hana í Nýjum Kvöld- vökum. Eg ímynda mér að einhverjir af lesendum N. Kv. hefðu gaman af að lesa þuluna, og svo væri alls ekki úr vegi, að ungu mennirnir, sem eru í þann veg að byrja búskapinn, kyntu sér hana, þar sem allflest búsgögn munu vera talin hér upp. Auðvitað saknar maður nokk- urra þeirra, sem nú þykja nauðsynleg, t. d. allra kaffi-áhalda, og bendir það á, að þulan muni vera gömul, og ort áður en kaffi- drykkjan hófst á íslandi. /. H.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.