Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 17

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 17
ÆFINTÝRI ÚR ÍSHAFINU 63 VIII. Hælluleg' ferð. — Seztu nú niður, sagði Guy. Þú ert alblóðugur um hendurnar. Ég skal reyna. Ég sá, hvernig Hawke fór að. Leslie lét undan hálf-nauðugur, og hann bað Guy gæta þess, að lenda ekki á milli skrúfublaðanna, þegar vélin færi af stað. Guy tók nú að snúa skrúfunni af al- efli, en árangurslaust. Hvað eftir annað sneri hann, þangað til ennið á honum var þakið frosnum svita. Að lokum varð hann svo uppgefinn, að hann hlaut að hætta. — Benzínið hefur líklega frosið, stundi hann lafmóður. Leslie reyndi nú og lagði sig allan fram, en orkaði engu. Það leit helzt út, sem væri það ákveðið af örlögunum, að sleðinn stæði þarna á ísnum, margar mílur frá skipinu. — Við neyðumst til að draga allt sam- an, sagði Guy. Það verður ekki svo erf- itt, þegar við höfum komizt af stað. Leslie var á öðru máli. Það mundi vera nokkurn veginn ógjörlegt að draga sleð- ann út að »Polarity« yfir allar hrjónur og sprungur, sem nóg var til af í ísnum. í sama bili opnaði Hawke augun. — Hvað gengur á? spurði hann þ)reytulega, eins og hann væri að vakna af þungum svefni. Leslie fór þegar að skýra honum frá ástæðum. — Björninn hefur farið illa með yður. Við drápum hann, og svo ætluðum við að aka yður út að skipinu, en við getum ekki komið vélinni af stað. Hawke sneri til höfðinu með erfiðis- munum og leit á stýi-isumbúnaðinn við sætið fyrir aftan hann. — Mig furðar ekki í því, sagði hann. Það er lokað fyrir kveikinguna. Snúið takkanum þarna og reynið aftur. Hann reyndi að rísa upp; en þegar hann fann, að vinstri handleggur hans var ónothæfur, féll hann stynjandi niður í sætið aftur. — Allur kurlaður, tautaði hann íyrir munni sér, en nógu hátt til þess, að Les- lie heyrði. Og Ranworth vill koma stóra sleðanum af stað sem fyrst. Ég hef trufl- að alla áætlunina með því að láta björn- inn misþyrma mér. Dæmalaus asni var ég, að hafa ekki hlaðið riffilinn. Nú gekk vel að koma vélinni af stað. Leslie settist og tók að risla við tækin. Sleðinn rann óðar af stað, en leitaði út af fyrri slóð sinni. Drengurinn greip stýrisstöngina. Hann komst fljótt að raun um, hve stýr- ið á heimskautafartækjum getur verið næmt, því er hann hreyfði við stönginni, ætlaði sleðinn þegar að velta. — Hægt, drengur, kallaði Guy í að- vörunarróm. Hann hélt Hawke við í sæt- inu. Það hafði liðið yfir hann aftur. Leslie hafði ekki ekið langt, þegar hánn hafði náð stjórn á sleðanum. Hann setti fullan hraða á og sleðinn flaug af stað. Leslie varð heitt í kinnum. Þetta gekk vel. Hann varð þó að hafa vakandi auga á mishæðunum. Það gekk vel yfir þá fyrstu. Sleðinn hoppaði og ruggaði ofur- lítið fyrsta spölinn en kyrrðist síðan. Allt í einu sá Leslie breiða sprungu framundan. Hún hlaut að hafa víkkað, síðan þeir fóru yfir hana síðast. Þegar sleðinn nálgaðist hina hættulegu sprungu með nálega jafn mikilli ferð og hraðlest, var ómögulegt að umflýja hana. Tilraun til að beygja af leið mundi kosta þá lífið. Og það sýndist næstum því ó- gjörlegt að hoppa yfir svo breiða sprungu.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.