Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 23
ÆFINTÝRI. ÚR ÍSHAFINU 69 öryggis hjuggu þeir merki í ísinn, sem .átti að vísa þeim veg til sleðans, svo að þeir lentu ekki á villigötum. Er þeir höfðu gengið eina enska mílu, án þess að finna nokkra breiða sprungu í ísinn, nam Ranworth staðar. Heimsskautsfararinr leituðu skjóls gegn kuldanum undir jaka einum og hvíldu sig í fjórðung stundar. Það var varla nokkurt orð talað á meðan. Menn- irnir voru of þrekaðir eftir ferðina um hrjónóttan ísinn í þessum nístingskalda norðangjósti. Aftur lögðu þeir af stað. Þegar þeir höfðu enn farið tvær mílur, komu þeir auga á auðan sjó. Loks höfðu þeir fundið leiðina, eftir þreytandi göngu þá vega- lengd, sem sleðinn mundi hafa runnið á fimm eða sex mínútum. — Ég hygg það sé bezt að við flýtum okkur til baka, sagði Rogers hásum rómi og benti til norðurs. Það snjóar þarna. það virðist vera reglulegur kafaldsbylur. Hásetinn hafði verið nærfærinn. Áður en þeir höfðu gengið mílufjórð- ung til baka, huldist hin daufa sólkringla og vindurinn færðist i aukana. Hann hvein tilbreytingarlaust og sópaði ísflák- ann. Sama hugsunin lagðist yfir þá alla, en enginn þeirra hætti á að segja neitt. Nú, þegar veðrið óx svo skyndilega, var sleðinn í hættu staddur. Ef stjórarn- ir losnuðu eða kaðlarnir slitnuðu, mundi sleðann reka frá ísnum og leiðangurs- rnennirnir vera glataðir. Og nú kom kafaldsbylurinn þjótandi. Hann hófst með sterkri vindhviðu, er hafði nálega feykt þeim öllum flötum. X. Danðasvefninn, Það var heppilegt að flokkur Ran- 'Worths átti undan vindi að sækja, því að það hefði verið ógerlegt að hafa sig á móti. Þeir sáu varla handaskil, og innan skanmis mundu merkin í snjónum vera afmáð. Stefnan var nú eingöngu á ábyrgð litla áttávitans, sem Ranworth hélt á í hendinni. Þeir runnu í spori og duttu hvað eftir annað. Einu sinni rasaði Guy og valt út af í snjóskafli. Hann var dauðþreyttur og virtist snjórinn svo þægilegur. Hann á- kvað þá að hvíla sig ofurlítið og ná fé- lögum sínum síðar. Hann var þegar hálf- sofandi. Þegar hann lagði höfuðið ofan á handlegg sér, var svo dásamlegt að liggja þannig. í sama bili leit Leslie við af tilviljun. Guy var horfinn. Leslie kallaði til hinna og benti aftur fyrir sig á einhverja dökka þústu, sem óljóst sást gegn um kófið. Hinir stönzuðu ósjálfrátt, meðan Leslie sneri við og flýtti sér þangað, er Guy lá. — Komdu nú, — fljótt! sagði hann. Hann kraup niður við hlið félaga síns og kallaði inn í eyra hans: — Þú mátt ekki leggjast hér til svefns. Eina svarið frá Guy var syfjuleg höfuðhreyfing. Leslie leit örvilnaður í áttina til sam- ferðamannanna. Þrjár hvítar verur stríddu móti veðrinu. — Hefur hann meitt sig? spurði Ran- worth. — Ekki held ég, svaraði Leslie. Foringinn gaf Rogers og Payne bend- ingu, og þeir hjálpuðu Leslie til að koma Guy á fætur. En þrátt fyrir það vildi drengurinn ekki hreyfa sig. Ranworth sá, að þetta ástand þurfti ákveðinna úrræða. Iiann lyfti hendinni og sló Guy í andlitið.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.