Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 28
74 NÝJAR KVÖLDVÖKUR — Það er eins gott að fá kúlu í höfuð- ið eins og — — Fjórir. — Að deyja smám saman í þessari — — Fimm. — Að deyja smám saman, segi ég — —■ Sex. —• 1 þessari ömmiegu líkkistu. — Sjö. — Héma, á ég við. — Átta. — Verið þér rólegir. Ég- sagði — — Níu. — Burt með þessa skammbyssu. Ég slaka til. Hvað er það, sem þér viljið láta okkur gera? — Það var skynsamlegt, sagði Ran- worth hvasst. Ef þér verðið fljótir að komast að verki, þá mun ég gefa yður upp sakir í þetta sinn. Þið tveir verðið að fara í land og festa tvo stjóra í brekkubrúnina og bíða svo frekari skip- ana. Hásetarnir tveir hjuggu nú ný þrep í ísinn og unnu verk sitt sómasamlega, þótt þeir sýndu ekki neinn áhuga fyrir því. Og nú, Leslie, hélt Ranworth áfram, verðurðu að hjálpa mér við að rekja sundur segidúksstrangana. Það var sorg- legt, að þetta skyldi koma fyrir. Við get- um ekki treyst hásetunum. Við getum ekki framar sofið allir samtímis. Meðan ég man, — þessi skammbyssa er ekki hlaðin. Nú, ég skal hlaða hana snöggvast. Segldúkurinn var breiddur á ísinn og festur við stjórana. Hreyflarnir voru aft- ur settir af stað, hjólin látin falla,. og sleðinn tók að hreyfa sig. Hœgt mjakaðist hann upp á ísinn. Hjólin fengu góða viðspyrnu í segldúkn- um, og sleðinn skreið upp brekkuna. Til allrar hamingju var dúkurinn nýr og sterkur, svo að hann dugði. Það leið ekki á löngu, þangað til sleðinn náði efri brekkubrúninni og var kominn heiiu og' höldnu upp á tiltölulega flatan ís. Þegar búið var að losa stjórana og* vefja segldúkinn saman, komu Rogers og Payne inn aftur. Þeir voru ennþá fúl- ir í skapi, og er þeir höfðu fengið sinn hluta af máltíðinni, sem Guy hafði mat- búið, drógu þeir sig út úr hópnum og inn í aftasta klefann. — Ef til vill verða þeir í betra skapi, er þeir hafa matazt, sagði Ranwoi*th, eins og sakir standa læt ég eins og þeir væru hér ekki. Sjö mínútum eftir brottför þeirra frá suðurbrún íssins, rann sleðinn niður sléttann halla og út í sjóinn. Tuttugu mílna breitt sund lá nú milli þeirra og nálægasta hlutans af Nova Ca- nia. — Svo að það er þetta, sem þeir eiga við, þegar þeir segja, að ísinn ryðji sig snemma, sagði Ranworth, þegar hann leit aftur í áttina til íshellunnar, sem stöðugt fjarlægðist. Það verður erfitt fyrir »Polarity« að komast gegnum þetta íshaft. Við erum heppnir, ef við finnum hana við Desolation Inlet, þegar við kom- um aftur. Leslie og Guy höfðu nú náð sér að fullu eftir hralcningana á ísnum. — Guy, sagði Ranworth stuttu síðar. Þú getur ef til vill hvílt mig við stýrið. Hafðu vakandi auga á ísreki. Ég hef þeg- ar mátt sneiða hjá nokkru af því. Þú æfist fljótt í að stýra. Guy, sem ekkert hafði á móti því, að fá eitthvað að gera, tók nú við stýrinu. — Hérna er stefnan, hélt Ranwortli á- fram og benti á áttavitann, norð 88° aust. Ég ætla að hvíla mig um hríð. Segðu mér til, óðar og þú kemur auga á land. Ranworth hafði afhent Guy stýrið af tveim ástæðum. Hann vissi að nauðsyn bar til, að einn þeirra væri ávallt á verði,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.