Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Blaðsíða 20
66 NÝJAR KVÖLDVÖKUR jafn hátt og um fullan hraða væri að ræða, mjakaðist sleðinn ergilega hægt. Loks tók hann að þokast upp eftir jakahaftinu. Ranworth hafði valið létt- færustu leiðina; en samt varð sleðimi að klifra upp ísvegg, sem hallaðist að minnsta kosti þrjátíu gráður. Það svarraði í ísnum, þegar tinda- keðjurnar grófu sig niður í hann. Stund- um ætlaði sleðinn að renna; en hann hélt ótrauður áfram upp á við, líkt og fluga, sem skríöur upp stofuvegg. Aftur gaf Ranworth merki um, að hreyflana skyldi stöðva. Sleðinn var nú úti á yztu ísbrún. Leslie sá sjóinn breiða úr sér tutugu fetum fyrir neðan þá. — Þetta verður vandasamt verk, sagði Ranworth. Heldurðu að hann þoli það? — Það gerir hann sjálfsagt, svaraði Leslie öruggur. — Bara að hann brjóti sig nú ekki okkar vegna, svaraði Ranworth og hló hranalega. Það er gagnslaust að stanza, þegar komið er fram af brúninni. — Viö verðum að hætta á það, sagði Leslie. Hann hafði örugga trú á útreikningum og áætlunum föður síns. Eftir þeim átti sleðinn að þola vel tuttugu og fimm feta hátt stökk ofan í sjóinn. — Jæja, sagði Ranworth. En það er engin ástæða til að við hættum allir líf- inu, ef tveir nægja. Guy og hásetarnir fengu skipun um að fara úr sleðanum og bíða á ísbrúninni,, þrátt fyrir mótmæli þeirra. Ef svo illa tækist til, að hliðarnar brotnuðu, mundi sleðinn sökkva eins og steinn, og Leslie og Ranworth mundu ekkert tækifæri hafa að sleppa lífs frá því. En þá gætu þó Guy og hinir tveir snúið aftur til >Po'- larity«. Leslie fannst það mesta ranglæti gegn Guy að hrekja hann út úr þessu notalega farrými og út í svo bitran kulda. Guy horfði hvíðafullur á sleðann, sem hreyfðist hægt áfram. A blábrúninni hékk hann andai-tak og hélt jafnvægi. Svo stakkzt hann fram af og skauzt eins og ör ofan í sjóinn. Það leið drykklöng stund unz sleðinn kom aftur í ljós. Guy til gleði leit hann út fyrir að vera óskemmdur. Sjórinn fór að ólga undir hvössum aft- urenda hans. Leslie hafði sett sjóskrúf- una af stað. Að reyna til að nálgast ís- brúnina aftur með hjálp loftskrúfanna,. hefði verið óðs manns æði. Sleðanum var stýrt gætilega inn að ís- brúninni. Guy og hásetarnir festu kaðal við haka, sem þeir höfðu vandlega skorð- að í sprungu, og þannig renndu þeir sér niður á sleðaþakið. Þaðan fóru þeir ofan um op, er var á lofti farrýmisins. Þegar sleðinn varð laus við ísinn, stefndi hann norður á bóginn. Loftskrúf- urnar voru settar af stað, og farartækið rann eftir haffletinum eins og sjóflug- vél með tuttugu og fimm mílufjórðunga hraða á klukkustund. Sjórinn var auður, og Leslie gat ekið fullum hraða. Það var engin hætta á, að loftskrúfurnar gætu rekizt á rekís. Ran- worth hafði ákveðið að nota þær til að ná þeim mesta hraða sem auðið væri. Ef þær unnu með sjóskrúfunni, gátu þær aukið hraðann um 25 af hundraði. — Þetta gengur bærilega, Leslie, sagði Ranworth hrifinn. Þú kannt, svci mér, Iagið á hreyflunum. — Það gengur hreint ekki svo illa, svaraði Leslie yfirlætislaust. Ferðinni var samt ekki langt komið, þegar Ranworth kallaði skyndilega: — Líttu upp, Leslie! ís fram undan! Á að gizka mílu fyrir framan þá virt- ist hinn opni sjór vera þrotinn. Svo langt sem séð varð, lá ísrönd, sem vera mundi tíu feta há yfir vatnsborð. Leslie dró óðar úr hraðanum, tók loft-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.