Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 39

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1935, Page 39
ASKJA 85 sem þá var nýorðinn stúdent og nú les jarðfræði í Kaupmannahöfn. Hann hafði einu sinni komið í Öskju áður, og var til með að reyna að rata þangað aftur. Fjórði maðurinn, sem ætlaði að vera með í förinni, var Bjarki Ásmundarson í Hlíð í Kinn. Höfðum við mælt okkur mót í Engidal þetta kvöld, en það var 21. júlí 1933. Eins og áður er getið var hiti mikill um daginn, og þótti okkur því hæfilegt að taka okkur dálitla hvíld í Stafni. Þar fengum við líka lánaða ýmsa smámuni til ferðarinnar, því margs þarf með á fjalla- ferðum, en við fátækir af slíkum hlutum og höfðum því látið greipar sópa um hér- aðið, og vorum orðnir uggandi um að hver fengi sitt að ferðalokum. Eftir að hafa fengið góðan beina í Stafni, héldum við ferðinni áfram. Fórum við fram hjá Laugaseli og Hörgsdal, og suður yfir Jafnafell, Fagurt er á Fljótsheiði á sumrum, hvort sem litið er fjær eða nær. Heið- in sjálf víðáttumikill geimur með fell- um og ásum, mýrum og móum, tjörn- um og stöðuvötnum, öll gróin, svo varla sér í stein. Þetta er paradís sauðanna og staður, sem sauðabændur líta hýru auga til. En um hana lykur fjallahringurinn víður og blár í fjarskanum. I vestri eru Bárðardalsfjöll, í norðvestri Kinnarfjöll, í norðaustri Grísatungu- og Lambafjöll, í austri Mývatnsfjöllin, í suðaustri Dyngjufjöll, en í suðri Trölladyngja. — En við gefum þessari fegurð lítinn gaum; hana höfum við oft séð áður. Einu fjöll- in, sem við veitum athygli, eru Dyngju- fjöllin- Þangað stefnir hugurinn óskiptur. Við höfðum búizt við að gista á syðstu bæjunum um nóttina og að lagt yrði á fjöllin næsta morgun. En þegar við kom- um í Engidal, var Tómas í óða önn að undirbúa ferðina og átti að leggja af stað um kvöldið. Nesti og hey handa hestunum fengum við þar og þar kom Bjarki skömmu á eftir okkur. Eftir að hafa neytt kjarngóðrar máltíðar, og beitt hestunum á gott haglendi, héldum við af stað. Höfðum við nú föggur nokkrar á aukahestunum, en gátum þó farið greitt þar, sem vegurinn leyfði það. — Við komum í Svartárkot um háttatíma. Það- an er lagt á öræfin. Sunnan og austan við túnið tekur við mesta hraunbreiða Is- lands, ódáðahraun, og bak við það glitti í Dyngjufjöll gegnum nætuvmistriö. — Við látum hestana grípa niður meðan við drekkum kaffi hjá Kristjáni bónda, og kl. 12 á miðnætti leggjum við af stað. Nú hefst aðajferðin. Frá Svartárkoti förum við fyrst yfir hraunálmu, ekki breiða, og komum þá að Suðurá. Kemur hún sunnan og austan hraunið, sem hér er alltaf nefnt »bruni«, og er allstór á. Meðfram henni er gróið land og sumstáðar slægjur. Við höldum upp með ánni og komum í Suðurárbotna eftir tveggja stunda ferð frá Svartár- koti. Þær eru síðustu hagar, sem leið okkar liggur um, og því sjálfsagt að stanza. Þarna er gangnamannakofi, sem Mývetningar eiga. Áin bullar hér upp um ótal hraunholur og er þegar með fullu vatnsmagni. Hestarnir eru ókyrrir, þótt haginn sé allgóður, og vilja snúa til baka. Þeim lízt ekki á grásvörtu úfnu flatn- eskjuna, sem framundan er. Eftir stutta dvöl höldum við inn í hraunið. Skömmu seinna komum við aftur að ánni, sem er þar á parti ofanjarðai', og meðfi'am henni er dálítill gróður, þó ekki hesta- hagi. En þetta þrýtur brátt og við tekur hraunið, þurrt og nokkuð sandorpið, ein- ungis með hlauphæringi og einstökum gTávíðihríslum. Kind og kind á stangli sést fyrst í stað, en því meiri verður auðnin, sem lengra dregur. — — — Á hægri hönd er hraunið, dökkt og úfið, og ber hærra en hraunið að norðaustan.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.