Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Blaðsíða 33

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Blaðsíða 33
SAGAN UM SNÚNA KERTIÐ 27 nrjalla að undanskildum þessum lausu skrúfum. Hann hefur tilkynnt, að hann ætli sér að dvelja þrjá mánuði ársins á Eng- landi og níu mánuði erlendis. Hann er mjög ríkur, á enga ættingja og er nrjög valdafík- inn«. »Þá verður hann hengdur«, mælti lög- reglustjórinn og stóð upp. »Ég efast urn það«, mælti hinn. »Menn sem eiga nóga peninga, verða sjaldan hengdir. Það er aðeins vegna peningaleysis, að menn verða hengdir«. »Þá eruð þér í nokkurri hættu, T. X.«, sagði lögreglustjórinn og brosti, »því sam- kvæmt reikningum mínum eruð þér alltaf meira eða minna í klípu«. »Meistaraleg meiðyrði«, sagði T. X., »en viðvíkjandi því að vera í klípu, — ég sá John Lexmann í dag — þér þekkið hann?« Lögreglustjórinn kinkaði kolli. »Mig grunar, að hann sé í slærnri pen- ingaklípu. Hann lenti í þessu rúmenska gullbraski, og eftir því að dæma hve hann var niðurdreginn og áhyggjufullur á svip, eins og þegar nraður er ástfanginn (en það getur hann ómögulega verið, úr því hann er giftur) — eða þegar maður er í skuld- Um, þá er ég smeykur um, að hann þjáist ennþá undir afleiðingum þessa rósrauða ævintýris«. Símabjalla úti í horni herbergisins hringdi ákaft og sterkt, og T. X. tók heyrnartólið. Hann hlustaði með ákafri athygli. »Landssíminn«, sagði hann aftur yfir öxi ser við lögreglustjórann, sem var að fara. Það ggeti verið eitthvað mikilvægt«. Dálítil þögn, svo talaði hás rödd við hann. »rEuð það þér, T. X.?« »Það er ég«, svaraði fulltrúinn stutt. »Það er John Lexman, sem talar«. »Ég þekkti ekki röddina«, sagði T. X. »Hvað er að hjá yður, John — getið þér ekki rakið úr flækjunum yðar?« »Ég þarf að biðja yður að koma hingað undir eins«, sagði röddin með ástríðu- þunga, og jafnvel í símanum skynjaði T. X. þjáningu og kvíða í röddinni. »Ég hef skotið mann — til bana!« T. X. greip andann á lofti. »Guð minn almáttugur«, sagði hann, »þér eruð alveg vitlaus!« III. KAPÍTULI. í fyrstu aftureldingu sátu nokkrar sorg- bitnar og niðurdregnar manneskjur í vinnu- stofunni á Beston Priory. John Lexman föl- ur í andliti, tekinn til augnanna og afar þreytulegur sat í legubekknum, og kona hans við hliðina á horium. Hið nauðsynlega og nærtæka yfirvald í mynd sveitaþorps lögregluþjóns var á verði í ganginum fyrir utan, og T. X. sat við borðið með skrif- blokk og blýant og skrifaði stuttorða lýs- ingu og skýrslu um atburðinn. Rithöfundurinn hafði gefið yfirlit yfir það, sem fyrir hafði komið urn daginn. Hann hafði lýst samtalinu við peningamangarann daginn áður en hann fékk bréfið. »Þér hafið bréfið?« spurði T. X. John Lexman kinkaði kolli. »Mér þykir vænt um það«, sagði T. X. og varpaði öndinni léttilega. »Það mun fría yður við mörg og margskonar óþægindi, veslings gamli vinur. Segið mér nú, hvað gerðist á eftir«. »Ég kom til þorpsins«, sagði John Lex- man, »og gekk gegnum það. Þar var eng- inn á ferli. Það rigndi framvegis mjög mik- ið, og ég mætti ekki einni einustu sál allt kvöldið. Ég var kominn á ákvörðunarstað- inn fimm mínútum fyrir tímann. Það var hornið á Eastburn Road stöðvar megin, og þar beið Vassalaró mín. Ég hálfskammað- ist mín yfirleitt að hitta hann undir þess- um kringumstæðum, en ég vildi allt til vinna, að hann kænri ekki heim til mín, því ég óttaðist, að það kynni að gera Grace skelkaða. Það sem gerði allt saman ennþá vitlausara og hlægilegra var þessi bölvuð 4*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.