Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Page 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Page 38
32 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hugsað okkur, að hann hafi farið um þetta hlið og svo eftir enginu meðfrain limgirð- ingunni, og að hann einhverstaðar á leið- inni frá hliðinu og hingað hafi fleygt vindl- inurn sínum«. »Vindlinum sinum?« sagði Mansus hissa. »Vindlinum sínum«, endurtók T. X.. »Hafi hann verið einsamall, hefur hann ef- laust látið lifa í vindlinum fram á síðustu stundu«. »Hann hefði getað fleygt honum á veg- inn«, sagði Mansus. »Ekki biaðra«, sagði T. X. og gekk á undan meðfram girðingunni. Þaðan sem þeir stóðu, gátu þeir nú séð hliðið, senr !á inn að veginum, hér um bil hundrað metra í burtu. Og tæpa tíu metra frá hliðinu fann T. X. það, sern hann var að leita að: hálf- reyktan vindil. Hann var gegnumsósaður af rigningunni, og T. X. tók hann upp með mestu varkárni. »Góður vindill að mínum dómi«, mælti hann, »skorinn með vasaklippum og reykt- ur í munnstykki. Þeir komu nú að hliðinu og gengu gegn- um það og komu nú áffur inn á veginn, og T. X. gekk áfram, unz þeir komu að öðrum þvervegi, se'm til vinstri beygði suður á bóginn og inn í aðal Eastburn-veginn, en hann beygði svo aftur vestur á bóginn ti! Lewes-Eastburn járnbrautarstöðvarinnar. Rigningin hafði máð út mikið af því, sem T. X. var að leita að, en allt í einu fann hann dauft far eftir bílhjól. »Hérna hefur hann snúið við og bakkað«, sagði hann og gekk hægt yfir á veginn til vinstri handar, »og hér hefur hann staðið. Hérna er smurningsolía úr vélinni. Hann beygði sig áfram og tiplaði eftir veginum í áþekkum stellingum og rússnesk- ur dansleikamaður. »Og hérna eru vax- spýturnar, sem bílstjórinn kveikti á«. Hann taldi: »Ein, tvær, þrjár, fjórar, fimm, sex; gerum nú tvær eldspýtur fyrir hvern vind- ling aðra eins rosanótt og i fyrri nótt, þá verða það þrír vindlingar. Hérna er vind- lings-stubbur, Mansus — Gold Flake brand«, mælti hann, er hann hafði skoðað stubbinn grandgæflega. »Og einn Gold Flake brand varir tólf mínútur í venjulegu veðri, en um átta mínútur í hvassviðri. Bíll- inn hefur staðið hér í tuttugu og fjórar mín- útur — hvað segirðu um það, Mansus?« »Skrambi góður stubbur af rökfærslu, T. X.«, svaraði hann stillilega. »Ef það væri nú aðeins sá bíllinn, sem þér eruð að líta eftir«. »Ég er að líta eftir hvaða gömlum bíl sem er«, Hann fann ekki minnsta vott af hjólför- um annað en þetta eina, þótt hann leitaði vandlega í allri tröðinni, unz hún náði aðal- veginum. Úr því var með öllu vonlaust að leita, þar eð það hafði rignt alla nóttina og fram á morgun. Hann rak á eftir aðstoð- armanni sínum, svo að hann kæmist á járn- brautar^töðina í tæka tíð og næði í eitt- lestina til Lundúna. »Þú átt að fara beina leið til Cadogan Square og taka fastan bílstjóra Mr. Kara«, sagði T. X. »Fyrir hvaða sök?« spurði Mansus snöggt. »Þú getur kært hann fyrir hvað sem þú vilt«, sagði T. X. með stakasta kæruleysi. »Ef til vill dettur þér eitthvað i hug á leið- inni til borgarinnar. Auövitaö hefur bílstjór- inn verið kallaður óvænt heim til Grikk- lands, og hann hefur sennilega farið með morgunlestinni til meginlandsins. Ef svo er, getum við ekkert gert, því að þá er skipið farið frá Dover og hefur skákað honum í land í Boulogne. En ef þú skyldir verða svo heppinn að ná í hann, verðurðu að halda í hann, þangað til ég kein aftur«. T. X. var sjálfur önnum kafinn þennan daginn, og það var ekki fyrr en í myrkri, að hann sneri aftur til Beston Tracey, og þar beið hans símskeyti. Hann opnaði það og las —•

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.