Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Page 39

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1936, Page 39
SAGAN UM SNÚNA KERTIÐ 33 »Nafn bílstjóra Goole. Fyrrum þjónn Enska klúbbnum. Fór áleiðis austur fyrstu morgunlest. Móðir hans veik«. »Móðir hans veik« sagði T. X. fyrirlit- lega. »En hvað það er bragðlaust! Ég hefði haldið, að Kara hefði dottið eitthvað betra í hug en þetta«. Hann var í vinnustofu John Lexmans, er hurðin var opnuð, og stúlkan tilkynnti: »Mr. Remington Kara«. IV. KAPlTULI. T. X. braut símskeytið mjög vandlega saman og stakk því í vestisvasa sinn. Hann heiðraði gestinn með oíurlítilli hneigingu, fók síðan að sér húsbóndaskyldurnar og ýtti hægindastól til gestsins. »Ég býst við, að þér kannist við nafn mitt«, mælti Kara frjálsmannlega. »Ég er vinur veslings Lexmans«. »Svo hefur mér verið sagt«, mælti T. X., »en látið samt ekki vináttu yðar við Lex- nian vera því -til fyrirstöðu, að þér setjið yöur niður«. • Sem allra snöggvast brá fyrir ofurlitlum undrunar- og vandræðasvip á andliti Gnkkjans, en svo brosti hann lítið eitt og hneigði sig og settist hjá skrifborðinu. »Ég er mjög hryggur út af þessum at- burðum«, hélt hann áfram, »og það hryggir nilg ennþá meira sökum þess, að það var e,nmitt ég, sem kynnti Lexman þessum ó- hamingjusama manni, svo að það er á viss- a,i hátt ég, sem ber ábyrgð á þessu«. »Væri ég í yðar sporum«, mælti T. X., hallaði sér aftur á bak í stólnum og leit hálf spyrjandi og hálf rannsakandi framan I hinn, »myndi ég ekki láta þetta halda fyr- II möf vöku. Flestir menn eru myrtir sök- Um kynningar. Það er mjög sjaldgæft, að maður myrði bráðókunnugan mann. Þetta stafar, býst ég við, af eylendingshætti vorr- ar þjóðarskapgerðar«. Gestinum brá á ný, og hann varð forviða á orðbragði mannsins. Hann hafði að minnsta kosti búizt við kurteislegri fram- komu af honum. »Hvenær sáuð þér Vassalaró síðast?« spurði T. X. ósköp elskulega. Kara lyfti brúnum, eins og hann væri að hugsa sig um. »Ég held að það hafi verið fyrir hér um bil viku síðan«. »Hugsið yður betur um«, sagði T. X. Aftur brá Grikkjanum, og aftur breiddi bros yfir svipbrigði hans. »Ég er hræddur um —«, hélt hann á- fram. »Kærið yður ekki um það«, sagði T. X., »en lofið mér að spyrja yður að nokkru. Þér voruð hér í gærkvöld, þegar Lexman fékk bréf. Að hann hafi fengið bréf, fyrir því eru allmiklar sannanir«, mælti T. X., er hann sá hik á hinum, »af því við höfum vitnisburð þjónsins og póstmannsins«. »Ég var hér staddur«, mælti Kara hægt og gætilega, »og ég var við, þegar Mr. Lexman fékk bréfið«. T. X. kinkaði kolli. »Bréf, skrifað á einskonar brúnleitan pappír, fremur þykkan og hrufóttan, að ég held«. Aftur brá fyrir þessu augnabliks hiki. »Ég þori ekkert að fullyrða um lit papp- írsins eða útlit bréfsins yfirleitt«, sagði hann. »Ég hélt þó að þér mynduð gera það«, gaf T. X. í skyn, »sökum þess, sjáið þér, að þér brennduð umslagið, og ég taldi því lík- legt, að þér hefðuð tekið eftir þessu«. »Mig rekur ekkert minni til að hafa brennt neinu umslagi«, svaraði hinn hik- laust. »Hvað um það«, hélt T. X. áfram, »þeg- ar Mr. Lexman las fyrir yður bréfið —«. »Hvaða bréf eigið þér við?« spurði Kara og lyfti brúnum. »Mr. Lexman fékk hótunarbréf«, svar- aði T. X. rólega, sem hann las fyrir yður, 5

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.