Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 14
8 KENNIMAÐUR N. Kv. Þegar bíllinn staðnæmdist loks á hlað- inu á Breiðavaði, var komið að venjuleg- um háttatíma, en þrátt fyrir það var allt fólk á ferli. Gunnar bóndi og kona hans tóku hið bezta á móti prestshjónunum. Var ferðafólkinu borinn hinn bezti greiði. Vegna þesá, hve áliðið var kvölds, var ekki hægt að koma fyrir farangri. Prests- hjónin ætluðu að sofa á mjóum legubekk yfir nóttina, en Gunnar skaut skjólshúsi yfir Martein. Jóhannes meðhjálpari ætl- aði heim til sín, en lofaði að koma snemma morguninn eftir ,til þess að vera hjálplegur við að koma búslóðinni fyrir. Síðan hnipruðu prestshjónin sig saman á legubekknum, þreytt en sæl, og sofnuðm fljótt, þó að hvílurúmið væri ekki hið ákjósanlegasta. 13. Frú Vigdís vaknaði snemma morguninn eftir. Það var ekki nema rétt að verða fullbjart, og maðurinn hennar svaf enn- þá, en sjálf var hún útsofin og fann ekki til þreytu. Hana langaði til að vekja hann, en þegar til kom, tímdi hún því ekki, því að hann svaf svo vært. Hann var auðvit- að þreyttur, því að erfiðleikar ferðalags- ins höfðu lent meira á honum en henni, og svo var hann að eðlisfari morgunsvæf- ari en hún. Hún klæddi sig hljóðlega. Hún gat ekki beðið með að athuga þetta nýja og ennþá óþekkta umhverfi dálítið upp á eigin spýtur. Þegar hún hafði lokið við að klæða sig, læddist hún út. Veðrið var gott. Sólin var ókomin upp, en þó var enginn kuldi í loft- inu. Iiún teygði úr sér, rétti handleggina upp fyrir höfuðið og dró djúpt andann. í nokkrum löngum, djúpum sogum teygaði hún í sig tært morgunloftið og naut þess að finna blóðið streyma hraðar um allar æðar, færandi þrótt og líf niður í tær og fram í fingurgóma. Svo lagði hún af stað og gekk upp tún- ið, upp á lambhúshólinn. Þar settist hún niður, dró að sér fæturna og spennti greipar fyrir framan þá. Þannig sat hún góða stund og litaðist um. Ofan til í vesturhlíðum dalsins var sól- in farin að skína. Sólskinsbekkurinn þok- aðist hægt og hægt niður hlíðina. Á flest- um þeim bæjum, sem hún sá, var reykur- inn farinn að liðast upp í loftið, og víða gat hún greint menn á ferli. Þarna var þéttbýlt, en misjafnir voru bæirnir að út- liti. Víða voru komin íbúðarhús annað- hvort úr steini eða timbri, en þó voru torfbæirnir í meirihluta, lágir, með grasi gróin þök og blökk þil fram á hlaðið. Hún horfði heim að bænum — bænum sínum. Hann var stór og traustlegur. Hann minnti hana dálítið á bæinn, sem hún hafði átt heima í, þegar hún var lít- il, og það eitt var nægilegt, til þess að henni fór strax að þykja vænt um hann. í þessum bæ mundi hún kunna vel við sig. Það var eitthvað leyndardómsfullt við þessa gömlu, stóru bæi, sem heillaði hana. Túnið var stórt og slétt, engið niður við ána sömuleiðis. Stutt sunnan við bæinn stóð kirkjan, hvítmáluð timburkirkja, með snotrum turni á vesturgafli yfir dyr- um. Kirkjugarðurinn var stór, en van- hirtur. Sunnan undir bænum var dálítill blómagarður. í honum voru einnig runn- ar og tré. Það gladdi hana. Hún h'akkaði til þess að hirða um hann. Sunnan undir gamla bænum hennar hafði líka verið garður, líkur þessum, og henni hafði þótt svo vænt um hann. Henni fannst, hálft í hvoru, að hann væri þarna kominn til hennar. Hinn græni litur sumarsins var horfinn af jörðinni. í brekkunum var víðirinn og birkikjarrið gulflekkótt. Allsstaðar var fé á beit. Jarmur þess barst að eyrum henn- ar. Hann var hás og þreytulegur, því að nýbúið var að taka lömbin undan ánum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.