Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 46
40 SVARTA EKKJAN N. Kv. vegur dálítið upp á móti kaldri morgun- golunni, sem næðir í gegnum leðurfötin. Um hádegisbilið förum við fram hjá kofa einum. Þar er Indiáni fyrir og söðlar múldýralest. Hann ætlar einnig suður á bóginn, segir hann. Við ríðum samsíða. Nú svíður sólin rykuga sléttuna, vi'ndinn hefir lægt og fyrir utan hófatakið heyrist ekki annað en hið hljómmikla hróp Indi- ánans, þegar hann hottar á hestinn. Hið erfiða og ei’nmanalega líf virðist hafa gerc Pablo, Indiánann, málstirðan. Af og til á leiðinni, ríðum við fram hjá leifum af mannabeinum. . „Það er hættulegt hér uppi“, segir Pablo, þegar við um kvöldið komum að yfirgefnum kofa. „Ræningjarnir skjóta marga af okkur, sjáið til“. „Og lögregluþjónana.......?“ „Hóhó.... haha.... lögregluþjónana? Þar hittir þú naglann á höfuðið. Held- urðu, að þeir láti sjá sig hér uppi? Ef til vill einu sinni fimmta hvert ár, allt og sumt“. „Ég hugði, að það hefði aðeins áður fyrr verið svo slæmt með þessa bófa, Pablo?“ „Já raunar, herra minn, nú er það miklu betra. En meðan að Jack með fjóra fingurna lifði, þá var bölvað að ferðast hér yfir“. „Þú segir: Jack með fjóra fingurna. Þekktir þú hann þá?“ „Nei, Senhor, grasias a Dios! En ég hefi heyrt mikið um hann. Við Indiánarnir tölum alltaf um hann. Hann var mikill þorpari.... Þjóðverji skaut hann“. „Veiztu, hver þessi Þjóðverji' var?“ „Nei, senhor“. „En ég veit það“. „Þá.... þá þekkið þér líka Don Firos, von Reyes liðsforingja.... en.... en....“. „Það er rétt, Pablo, láttu þér ekki' verða svo mikið um, að þú dettir af baki. Ég veit raunar ekkert um þetta auknefni, og hvað vini mínum, Reyes liðsforingja, við- víkur, þá hefi ég ekki séð hann í mörg ár. Ekki síðan, að ég fór til Mexiko“. „En þá eruð þér maðurinn, sem skýtur hverju skotinu á fætur öðru, Don Firos?“ „Getur verið. Ég sagði aðeins, að ég þekkti hann“. Pablo getur varla stillt sig. Ég rétti honum eina bjúgu og svo oststykki og síðan vínflöskuna mína. Pablo tekur við því, hámar í sig og slokar úr flöskunni, en það er eins og hann taki ekki eftir því, hvað hann gerir. Augu hans ljóma af hrifni'ngu. Nú er hann í essinu sína. Eftir kvöldverðinn, þegar við hvílum báðir með höfuðin á hnökkunum og tottum pípurnar okkar, þá losnar um málbeinið á honum. Við fætur okkar snarkar þægilega í eldinum. Ég vef ábreiðunni’ þéttar að mér. Nú er tími fyrir Pablo að byrja. „Á morgun, patron“,* tók hann til máls, „komum við til draugahússins. Það er hús svörtu ekkjunnar, sem við nefnum svo. Og hvergi í nágrenninu er hægt að finna annan náttstað. Við Indíánarnir för- um með lestir okkar árið um kring yfir hásléttuna, og við vitum það vel, að það er reimt þar. Allt fyrir það förum við þangað, því að það er eina hælið, sem hægt er að dvelja í yfir nóttina. Þessi vofa, sem gengur þarna um, gerir okkur ekkert, af því að við erum kristnir og berum verndargrip um hálsinn, sem ver okkur gegn henni' og öðrum illum öndum. Hvers vegna sú gamla gengur aftur, spyrð þú? Hún hefir gert það í mörg ár, síðan að hún var myrt. Svarta ekkjan hvarf, en andi hennar reikar um húsið á hverri nóttu, þar til dagur rennur. Eitt skipti er það svart svín, annað skipti svartur hundur. Stundum er það hlébarði með glóandi augu eða þá svartur og úfinn * Herra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.