Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Blaðsíða 35
N. Kv. SYNIR ARABAHÖFÐINGJANS 29 honum tókst að stilla sig og vinna bug á tilfinningum sínum. „Það er sennilega kringumstæðurnar, sem hafa skilið ykkur Caryll að“, sagði hann stillilega. „Uppeldi hans í öðru landi. Og svo þessir erfiðleikar og vanda- mál, sem bárust að höndum, um leið og hann kom hingað. Síðustu fjórir dagar hafa verið okkur öllum erfiðir11. „En á hvern hátt hafa þeir erfiðleikar snert Caryll?“ Díana leit upp, hálf-for- viða, gegnum tárin. „Hann er utan við það allt saman, og einnig það, sem bróðir hans hefir lent í. Og hann hefir ekki nefnt bróður sinn á nafn né spurt hann um neitt þessu viðvíkjandi. Hann sýnir honum sama kæringarleysið og okkur hinum. Og ég sem hefi beðið þess svo heitt og dreymt um, að þeir yrðu góðir vinir“. Saint Hubert yppti aðeins öxlum. Hann vissi það, sem henni var dulið. „Hann er einkennilegur náungi“, sagði hann hæg- látlega, „óvenju hlédrægur og á erfitt með að venjast siðum og staðháttum hér. Hann finnur ef til vill til þess, að hann hefir komið hingað á óhentugum tíma, og hikar því við að vera of nærgöngull við okkur. Þegar úr þessu rætist, jafnar þetta sig vonandi allt saman“. „Já, ef að það gæti orðið!“ Díana hróp- aði þetta hátt í sárum kvíða. „Æ, Raoul, hvernig lýkur þessu öllu saman!“ Raoul varð svarafátt á ný. „Það má Guð vita“, sagði hann aðeins. Og síðan varð stundarþögn. Díana lá á milli svæfl- anna á dívaninum og starði út í bláinn og var að velta fyrir sér, hvernig hún ætti að koma orðum að því, sem henni bjó í huga. Og hvort Raoul myndi setja sig á móti því, að hún færi þángað? Ætti hún að minnast á þessa ferð við hann? Yrði það ekki ofraun vináttu hans, þar eð hon- um var kunnugt, að Ahmed hafði lagt þverrt bann við þessu. Og hún mat mikils vináttu hans. — Hún sneri sér snöggt að honum og sagði innilega: „Ætli tvær manneskjur hafi nokkuru sinni átt eins góðan vin sameiginlega, eins og við hjónin eigum í yður Raoul? Þér vitið sjálfur, hve þér eruð Ahmed ómetanlegur, en ég held ekki, að þér hafið hugmynd um alla þá aðstoð og hjálp, sem þér hafið veitt mér síðan við kynntumst fyrst. Og eg get ekki talið það allt upp núna. Þér getið aðeins treyst því, sem ég segi. Ég er yður takmarkalaust þakklát, Raoul!“ Þakklæti. Það var allt og sumt, sem hann gat nokkuru sinni vænst hjá henni. Hann hrökk við og kreppti hnefana. Svo laut h ann áfram og sló með fingrinum öskuna af vindlingi sínum, svo að Díana skyldi ekki sjá framan í hann. „En ég þá! Hefi ég ekki líka ástæðu til að vera þakklátur?“ svaraði hann, en rödd hans var hljómlaus. „Hafið þér hugsað út í, hvers virði vinátta yðar' — og Ahmeds hefir verið einmana manni?“ Hún hló lágt og hlýtt og hristi höfuðið. í andmælaskyni. „Hvað eruð þér að segja? Þér eigið ekki að vera svona lítillátur. Þér eigið miklu fleiri vini, en yður grun- ar.“ En svo beindist hugur hennar í aðra átt, og hún varð aftur alvarleg. „Þér fóruð óvenju snemma til El-Hassi í dag. Ahmed spurði eftir yður, áður en hann lagði af stað, en Gaston sagði, að þér væruð þegar farinn“. „Nei, ég held ekki, að það hafi verið neitt áríðandi“, bætti hún við, er hann leit spyrjandi á hana. „Það var víst aðeins eitthvað um varðsveitirnar norðurfrá. Hann hefir nú loks kallað þær heim aft- ur. Þær voru aðeins sendar þangað sökum þess, að ég var alein heima. Þegar Ah- med er sjálfur heima, þarf þeirra ekki með. Þær komu hingað í gærkvöld og urðu honum svo samferða til Ras Djebel í morgun. Þetta eru flest allt giftir menn, og kon- ur þeirra eiga þar heima“. Hún þagði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.