Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Qupperneq 49

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1941, Qupperneq 49
N. Kv. SVARTA EKKJAN 43 Þvættingur, segi ég aftur við sjálfan mig, þetta með æpið er líka ímyndun. Þar með vef ég ábreiðunni utan um mig alveg upp að höku og legst fyrir í hálminum. Pablo er þegar við hliðina á mér. Hann skríður fast að mér. „Ég er hræddur, patron“, kjökrar hann, „mjög hræddur“- Ég hlýt að hafa legið heilan klukku- tíma vakandi, þegar ég heyri aftur þrusk úti' við vegginn. Hljóðlega lyfti ég höfð- inu og hlusta. Indiáninn biður fyrir sér í hálfum hljóðum. Ég rís upp við olnboga og stari inn í dimma dyragættina. Dreymir mig, eða eru það logatungurn- ar, sem blinda mig? Úr dimmum dyrunum stara tvö augu á okkur. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.... Augun færast nær. Milli’ eldsins og dyranna stendur risastór, svart- ur hundur, stærri en nokkur fjárhundur. Raunar aðeins beinagrind með svörtum og úfnum feldi. Og hversu augun í hon- um stara óviðkunnanlega. Það eru ekki hundsaugu, heldur mannsaugu, sem eitt- hvað vilja segja. Það er eins og standi eitthvað fast í hálsinum á mér. Ég þoli ekki lengur þessi augu- Ég vil drepa hundinn, en ég get það ekki. Augun stara á mig, eins og þau vilji segja: Ég veit hvað þú hugsar. Og svo kemur þetta óskiljnalega: Hausinn a hundinum beinist í áttina til eldhússins. Hann kinnkar kolli eins og maður, sem vill segja: Komdu með mér. Ég smeygi mér úr ábreiðunni og geng með skammbyssuna í hendinni til hunds- ins. Hann læðist inn í eldhúsið, þar heyri ég hann ýlfra og krafsa. Tveimur sekúndum seinna stend ég í dyrunum og held brennandi skíði yfir höfði mér- Á þessu augnabliki dreymir mig hvorki né er drukkinn, ég stend þarna og hlusta.... ég heyri lágan hlátur. Hvar er hundurinn? Fyrir aftan mig krýpur Pablo og heldur sér fast í föt mín. Ég sný mér við og ætla að hrista hann af mér. Stórir svitadropar sitja á enni hans og augun í honum hringsnúast svo af skelfingu, að það sézt ekki nema hvítan. „Es la mujer.... es la mujer.... Það er konan.... Það er konan“, segir hann í sífellu. Hárin rísa á höfðinu á mér.... Þarna er hundurinn kominn aftur, hann krafsar upp moldargólfið með löppunum. í einu vetfangi kasta ég kyndlinum að honum og skýt sex skotum á hann. Ekkert hljóð, ekkert ýlfur.... ekkert. En — flissaði ekki einhver fyrir utan dyrnar, ilikvittnislega? Nú veit ég ekki hvað ég geri. Eg þýt til baka, stingst um Pablo, 'brölti aftur á fætur og hrifsa skíð úr eldinum og flýti mér aftur inn í eld- húsið. „Taktu við!“ Indíáninn grípur kyndilinn. Við síðu hans hangir stór hnífur. Eg þrýf hann og róta upp gólfinu. Ef konan er hér einhver- staðar, þá veit ég nú hvar hennar á að leita. Eg þykist viss um það, án þess að ég geri mér grein fyrir, hversvegna. Eg gref og gref. Fimm mínútur, sex mínútur, sjö mínútur, f til vill voru það tíu og allt í einu rekst hnífurinn í eitt- hvað. Hár — svart hár með bláleitri slikju .... höfuð. t „Hjálpaðu mér!“ Varkárnislega losum við konuna úr þéttu gólfinu. Þetta var svarta ekkjan. Svarta ekkjan eins og gerð að „múmíu“ með eitri. í einu horninu finnum við tóma poka og hjúpum líkið í þeim. Með hálf ruglingslegu glotti á vörunum hjálpar Pablo mér ósjálfrátt. Því næst geng ég til dyranna, og ósjálfrátt lít ég á gólfið. Hvar eru sporin eftir hundinn?' Eg 6*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.