Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Qupperneq 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Qupperneq 9
Jí.. Kv. DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI 103 fjórum þáttum. Drög til hans hefir höf- undurinn tekið úr gömlum sálmum og þjóðsögunni „Sálin hans Jóns míns“, sem prentuð er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. í snjöllum inngangi, Prologus, gerir höf- undurinn grein fyrir eðli og innihaldi leiksins. Hann hefur upp raust sína og minnir á, að margt sé hulið bak við tím- ans tjöld, sem trú og siðir okkar verði að gjalda, að „í bæjartóttum bleikra eyði- dala birtist þeim margt, sem heyra stein- inn tala“. Svo hefst frásagan: Gamlar hlóðir minna á elda, sem tötrum vafin kynslóð sat umhverfis, kynslóð, sem kirkjuvaldið hafði lagt á sína þungu trúarfjötra. Hvar- vetna kraumaði í seiðkatlinum, og um pallinn dönsuðu draugar og vofur, reiðu- búin til þess að granda fjöri fólks og fén- aðar, ef færi gafst. En „í Helvíti var ó- vinurinn sjálfur“, fyllandi hverja byggð böli og syndum. Hver verður svo ávöxtur þessara trú- arbragða í landi harðinda, jarðskjálfta og eldgosa? Gefum skáldinu orðið: „í sveitum magnast sifjaspell og losti, og suma brennir óslökkvandi þorsti, húsgangar lifa á hrati og mosaskófum, en hungrið gerir aðra að sauðaþjófum. Menn verða trylltir, vega sína bræður og vita, að það er djöfullinn sem ræður“. Aðrir reyna að finna vilja guðs og fyr- irheit í gömlum, rykföllnum bókum, — „— fara að reyna að varða veginn í von um eitthvað betra hinum megin“. Næst rekur skáldið þjóðtrúna íslenzku um viðskilnað líkama og sálar í dauðan- um, för hennar upp til himnaríkis um kletta og klökugar hlíðar, þar sem djöf- ullinn liggur á gægjum, unz sálin kemur að gullna hliðinu og biðst inngöngu. >,Þar skriftar hún, þar betlar hún og biður. kar bíður sumra eilíf dýrð og friður. En hinir mega sjálfum sér um kenna og sökkva niður í logana — og brenna. Þannig var íslenzk þjóðtrú fyrri alda, þrotlaust stríð — á milli tveggja valda“. Upp af þessum myrka grunni reisir Davíð Stefánsson listaverk sitt, Gullna hliðið. Það er svo ramm-íslenzkt að hugs- un og máli, sem framast má verða, en að skáldrit séu þjóðleg, er eitt höfuðskilyrði þess, að þau verði sígild og veki eftirtekt og aðdáun annarra þjóða. Þjóðlegustu bókmenntirnar eru því um leið líklegast- ar til þess að verða heimsbókmenntir. Davíð Stefánsson virðist einnig hafa tileinkað sér alla þá tækni, sem nútíma- leikritagerð krefst. Persónur eru margar og afburðaskýrt dregnar, samtölin hnit- miðuð og kyngimögnuð, og víða spreng- hlægileg, sviðið breytilegt og krefst mik- illa leiktjalda og ljósaútbúnaðar. Fyrsti þáttur gerist í hrörlegu afdalakoti. Þetta er á vökunni snemma vetrar. Jón gamli húsbóndinn, liggur helsjúkur í fletinu og hryglir í honum. Auk hans eru í baðstof- unni kerlingin, kona hans, og Vilborg grasakona. Þær óttast um líf húsbóndans, en bera þó meiri áhyggjur út af sálar- heill hans, ef dauðann skyldi bera að höndum. Vilborg, sem full er af fornum, dularfullum vísdómi þjóðarinnar, reynir fyrst í stað að bjarga lífi Jóns með undar- lega útbúnum lyfjum, sem hún sjálf fram- leiðir, og ekki eru síður miðuð við sálar- ástand sjúklingsins og innræti, en líkam- legan krankleika. Allt kemur þó fyrir ekki, Jóni hrakar. Konurnar snúa sér nú að því, að fá hann til að iðrast synda sinna, en hann er ekki á því. Þær syngja kröftuga sálma, en Jón kallar söng þeirra andskotans öskur, og þegar þær bjóða honum að sækja prest, svo að hann geti meðtekið hina síðustu smurningu, þá heimtar hann tóbak og brennivín. Skyndilega deyr grútarljósið og í bjarm- anum frá hlóðunum birtast höfuðsyndir Jóns í púkalíki.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.