Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 42
136 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv.. svo frá andliti hins dauða, að það þekktist ekki“. „Líkið er vel geymt í kirkjuhellinum, og slík ráðstöfun var í rauninni óþörf“. „Ég mun fljótlega ganga úr skugga um það“, svaraði sá reiðmannanna, sem nefndur hafði verið hershöfðingi. „Að lokum er aðal hindruninni rutt úr vegi og vinur minn Rodriguez plantekrueig- andi, sem ekki vildi deyja, er ekki lengur í tölu lifenda. Nú erfir Dolores einkadótt- ir hans öll hin geysilegu auðæfi og svo sannarlega sem ég heiti Juan Banderas og er mexíkanskur hershöfðingi og fyrrver- andi ríkisstjóri í Sonoranýlendunni, skal þessi fagra mær vera orðin konan mín innan þriggja mánaða!“ „Þér gleymið Jaime bróður hennar“. Hershöfðinginn hló óhugnanlega og sagði: „Sá hrokagikkur skal bíta í grasið áður en við hverfum heim á leið aftur“. Förunautur hershöfðingjans tók undir þennan ískyggilega hlátur. „Sá góði Rodriguez gat sannarlega ekki kosið annan heppilegri forráðamann fyrir stúlkuna en yður, hershöfðingi, það var líka ákveðið í erfðaskrá hans“. „Ég var bezti vinur hans“, svaraði Juan Banderas háðslega „og mér finnst það harla eðlilegt, að hann veitti mér þann trúnað“. Vegna þrumugnýsins höfðu þeir næst- um því orðið að kallast á. Hvorugur grímu- mannanna bar kvíðboga fyrir því að nokkur myndi heyra til þeirra í þessum óbyggðum. Þeir riðu um stund þegjandi og Gomez litaðist öðru hvoru um til að átta sig á stefnunni, þegar ný elding lýsti upp um- hverfið. Allt í einu kippti hann í taum- ana á hesti sínum svo snöggt, að hann prjónaði og mundi hafa varpað honum af baki, ef hann hefði ekki setið eins og Mettur í söðlinum. Hershöfðinginn reið einn áfram um stund, en þegar hann leit við og sá ekki förunaut sinn við hlið sér, stanzaði hann líka, sneri sér við og hrópaði: „Hver djöfullinn er orðinn af þér, Gomez?“ Gomez gaf aðeins frá sér einhver óskiljanleg hljóð og virtist ekki koma upp nokkru orði. Hann benti aðeins til vinstri handar, eins og það, sem skotið hefði hon- um skelk í bringu, væri þar. Hershöfðinginn horfði þangað, en sá ekkert. „Hvað er á seiði?“ spurði hann óþolin- móður, þegar Gomez náði honum. „í guðs bænum, herra“, stamaði Gom- ez, „við skulum snúa við“. „Hvers vegna það?“ spurði Banderas og gretti sig. „Það var draugur við götuna“. Hershöfðinginn skalf. „Það hlýtur að hafa verið missýning“ svaraði hann loks. „Hefir mér nokkurn tíma missýnst, síðan þér kynntust mér, hershöfðingi?“ „Hvernig leit draugurinn þá út?“ „Hann var risavaxinn og----------“ hann lauk ekki við setninguna, en benti stam- andi til hægri: „Þarna er hann aftur!“ Banderas rak upp skaðræðis hljóð. í bjarma eldingarinnar sá hann það, sem skotið hafði þjóni hans skelk í bringu. Einhver risavaxin vera, að minnsta kosti níu fet á hæð, stóð eins og líkneski við veginn, sveipuð hvítri kápu og með hött á höfði. Hershöfðingjanum var ekki síður bilt en Gomezi. Að lokum hleypti hann í sig kjarki og keyrði hest sinn sporum í áttina að óvætt þessari. „Maður eða djöfull!“ hrópaði hann. „Hver ert þú, er dirfist að varna mér vegar? Svaraðu, eða ég læt sverð mitt kenna þér málið!“

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.