Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Qupperneq 12

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Qupperneq 12
106 DAVÍÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI N, Kv. lifa meðal okkar enn þann dag í dag. Það eru margir menn og margar konur stöð- ugt að hrapa, stöðugt á niðurleið, og engu síður úr hópi þeirra, sem gullinu safna eða settir hafa verið til þess að gæta rétt- ar og laga. Hver eyrir, sem vísvitandi er illa fenginn, hver dómur, sem vísvitandi hefir ranglega verið uppkveðinn, orsakar siðferðilegar slysfarir geranda síns, hrynd- ir honum niður á við. Nautnaþrællinn fer sömu leiðina, hræsnarinn og sá, er vitandi vits afvegaleiðir þreklitla og villugjarna bræður sína. Allir þessir fjarlægjast hið gullna hlið, það himnaríki þroska og full- komnunar, sem mennirnir í eðli sínu þrá, þeir fjarlægjast það, og ástæðan er sú, að þeir hafa brotið lögmál náttúrunnar, lög- mál hjartans eða samvizkunnar, og lifa í fjandskap við sjálfa sig. Bóndinn og Helga í þriðja þætti eru andstæður þessara einstaklinga. Þau eru börn jarðarinnar, hinnar upprunalegu og óspilltu náttúru, sem að vísu vegur, — en vegur blind. Hún er því syndlaus og sjálfri sér samkvæm, og þeir, sem lifa í sam- ræmi við hana, hljóta hamingjuuna að launum. Og náttúran er einnig lífgjafi, svo að þeir, sem hana elska og henni þjóna, hljóta að vera í þjónustu lífsins. En þjónusta við lífið er leið til þroska, leið til fullkomnunar, eða með öðrum orðum leiðin til himnaríkis. Þangað hljóta þau bóndinn og Helga því að ná, enda þótt þau væru aldrei sérlega kirkjurækin í jarðlífinu, enda þótt þeim finnist ýmsir himnabúanna jafnvel guðhræddir og heilagir um of. Síðasti þáttur leiksins er ef til vill tor- skildastur. Hvernig stendur til dæmis á því, að kerlingin skuli geta gert Jón sinn sáluhólpinn, enda þótt hann samkvæmt lögum himnaríkis sé dæmdur til útskúf- unar? Ef til vill liggur skýringin í orð- um þeim, sem skáldið leggur postulanum Páli í munn eftir að kerlingin hefir leik- ið á Lykla-Pétur og kastað skjóðunni inn fyrir hliðið: „Kærleikurinn er langlyndur, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Hans er mátturinn og dýrðin“. En Jón hefir einnig sínar málsbætur. Hann er hreinn og beinn og hræsnislaus, og lestir hans eru ekki sjálfskapaðir, heldur eru þeir samfélaginu og lífskjörunum að kenna. Hann hefir drýgt yfirsjónir sínar í sjálfsvörn, ef svo mætti segja. Þótt hann hljóti þrátt fyrir það að verða dæmdur samkvæmt bókstaf hinna himnesku laga, má sýkna hann samkvæmt anda þeirra. í múrvegg þeirra finnst smuga, sem hægt er að komast í gegnum, og verðirnir vita það. Röggsemi þeirra slævist. Þeir gefa andstæðingnum færi á að koma fram vilja sínum. Og hann notar sér það. Allt skal í sölurnar leggja fyrir ástvininn, jafnvel sáluhjálp sína, ef nauðsyn krefur. Slík ást er að vísu ekkert nýtt fyrirbrigði í bókmenntunum, enda er sjónleikur Davíðs Stefánssonar ekki fyrst og fremst byggður á þeim grunni. Hann fjallar um mannssálirnar í öllum þeirra margbreytileika, um óskir þeirra og ástríð- ur, um fegurð þeirra og herfileika, um baráttu þeirra, ófarir og sigra. Ég tel, að með bók þessari hafi Davíð Stefánsson frá Fagraskógi áunnið sér sæti meðal fremstu leikritaskálda á heimsbók- menntalegan mælikvarða, og mun nú ís- lenzka þjóðin óska honum hjartanlega til hamingju með sinn nýja, stóra bókmennta- sigur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.