Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Síða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Síða 13
N. Kv. Sigurður Róbertsson: Kennimaður. — SAGA. — (Framhald). 20. Seinnipart dagsins hvessti af norðri með rigningu. Séra Bjarni var á leiðinni framan úr dal. Hann hafði ennþá einu sinni verið að tala við sóknarbörn sín í Brúarsókn um kirkjumálið. Raunar hlaut hverjum skynsamlega hugsandi manni að vera það ljóst, að mál þetta var dauða- dæmt eins og sakir stóðu, því að hvergi var hægt að fá peninga. En með ódrep- andi þrákelkni hélt séra Bjarni málinu vakandi. Hann reið á milli bændanna og talaði við þá um þessa miklu nauðsyn, stakk upp á margs konar aðferðum til fjáröflunar, eins og frjálsum samskotum, samkomum til ágóða fyrir málið, happ- drætti eða hlutaveltu. Þessi fyrirhöfn hans var þó orðin með öllu vonlaus, því að þeir fáu, sem höfðu verið því fylgjandi, voru algerlega búnir að missa móðinn og vildu slá öllu á frest um óákveðinn tíma. — Núna var hann að koma úr einni slíkri ferð, leiður í skapi yfir skilningsleysi og dauðyflishætti bændanna, og svo gerði veðrið sitt til þess að gera honum gramt í geði. Hann var kominn út að Ási. Það var rýrðarkot, túnið lítið, bærinn lélegur og umhverfið fremur harðhnjóskulegt. Veg- urinn lá rétt hjá bænum. Hann hitti bóndann úti; var hann að gera við tún- girðinguna, þrátt fyrir óveðrið. Þeir tóku tal saman. Bóndi bauð gestin- um í bæinn, en séra Bjarni neitaði því. Bónda þótti prgstur—fremur kuldalega klæddur og bauð honum olíutreyju, til þess að verjast því að verða holdvotur. Varð prestur því boði feginn, því að hann var farinn að finna til bleytu í gegnum fötin. — Ég skila yður treyjunni fljótlega, sagði hann að skilnaði. — Hafið þér það bara eftir hentugleik- um, svaraði bóndi. Séra Bjarna leið strax betur þegar hann var kominn í treyjuna, og honum létti heldur í skapi við hugulsemina. Hann knúði klárinn sporum og náði farsællega heim til sín. Treyjuna hengdi hann inn í gamla skemmu yzt á hlaðinu. Þar fékk hún að hanga nokkuð lengi, því að presti var um margt annað sýnna en að muna eftir ein- um treyjugarmi, sem þó hafði komið í góðar þarfir. Veðurfarið breyttist líka til batnaðar, svo að olíutreyjur voru óþarfa- klæðnaður. En svo kólnaði aftur og nokkurn tíma gekk á með hryssingsveðrum, en svo batn- aði á ný. Þá var það einn dag, að Páll „sitt á hvað“ kom í Breiðavað. Var hon- um orðið tíðförult þangað í seinni tíð, því að hann hafði oft fréttir að færa, sem séra Bjarna var hugleikið að heyra. í þetta sinn hafði hann þau tíðindi að segja, að Ólafur í Ási læg'i þungt haldinn í lungnabólgu. Hafði hann orðið að liggja á greni yfir kuldakastið og ekki verið sem bezt búinn. 14*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.