Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Side 16

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Side 16
110 KENNIMAÐUR N. K\r brunað fram hjá henni í líki þróttmikilla tryppa og vakið upp í vitund hennar óslökkvandi frelsisþrá og uppreisnaranda gegn ánauð og kúgun. Þess vegna báru til- raunir prests um að koma henni áfram engan árangur. Hann fór að hamast um á baki hennar, lamdi fótastokkinn ákaft, tók harkalega í taumana og lét svipuna skella harðar og harðar um lendar henn- ar. En Brúnka lét samt ekki undan. Hún setti sig í hnút, tók höggunum með þrá- kelknislegri fyrirlitningu og þokaði sér aftur á bak út úr götunni í áttina á eftir hrossahópnum. En nú fór að síga alvarlega í séra Bjarna Símonarson. Hann reiddi svipuna fastar og fastar, unz hann hafði ekki þrótt til þess að beita henni betur. En þó að Brúnka gamla fyndi sárt til undan hverju höggi, stælti það aðeins í henni mótþró- ann. Alveg að óvörum lyfti hún snöggt upp afturendanum, af lítilli kurteisi og ennþá minni virðingu fyrir því geistlega valdi, sem á hrygg hennar sat. Þetta upp- átæki hennar bar þann árangur, að prest- ur missti jafnvægið og steyptist fram af hryssunni niður í skorningana. Hruflaði hann sig ofurlítið í framan og fékk þar að auki blóðnasir. Fötin hans létu líka dálít- ið á sjá við að komast í snertingu við rennvott grasið. — Helvítis merin, tautaði hann reiður um leið og hann brölti á fætur og skyrpti út úr sér blóðdrefjum. Brúnka hafði ætlað að sæta lagi og gera sig ósýnilega, en prestur hafði ekki, þrátt fyrir þetta, misst tökin af beizlistaumun- um. Sigur Brúnku varð því ekki eins glæsilegur og hún hafði vonað. Hún varð að gera sér það að góðu að lúta í lægra haldi. Ekki fékkst hún samt til þess að hreyfa sig úr sporunum, þó að prestur færi á bak. Hann varð að ganga og teyma góðan spöl, en þá fór henni að skiljast, að þýðingarlaust mundi vera að þverskallast lengur, svo að hún sýndi auðsveipni það sem eftir var ferðarinnar. Þokan grúfðu ennþá yfir, þegar hann reið í hlaðið á Ási. Hann hitti tvö börn ung úti á hlaðinu og gerði boð eftir mömmu þeirra. Þau hurfu þegar inn í bæinn, og eftir stutta stund kom konan út. Hún var rauðeygð og þreytuleg á svip> og tók kveðju hans fremur tómlátlega. Á að gizka tólf til þrettán ára drengur kom út á eftir henni. Hún bað hann að taka við hrossinu, því að hún gekk ekki að því gruflandi, að presturinn mundi ekki vera kominn til þess að snúa strax við aftur. Án þess eiginlega að segja nokkuð, bauð hún honum sæti á eina stólnum, sem sjáanlegur var; sjálf stað- næmdist hún við litla stafngluggann og horfði út í myrkgráa þokuna, sem grúfði yfir öllu dimm og þung eins og sorgin, sem myrkvaði hennar eigin hugarheim. — Ég kem til þess að votta yður mína dýpstu samúð og hluttekningu, byrjaði séra Bjarni. Ég get vel gert mér það ljóst, að þetta muni vera þungt áfall fyrir yður. — Ég þakka yður fyrir, tautaði ekkjan lágt, án þess að snúa sér við. Séra Bjarni ræskti sig. Hann hafði ver- ið búinn að taka saman huggunarríka og áhrifamikla ræðu, en í bráðina hafði hann gleymt því, hvernig hann hafði hugsað sér upphafið, svo að hann varð að hugsa sig um, áður en hann héldi lengra. — Þegar sorgin nístir hjarta vort, er eitt nauðsynlegt til þess að deyfa hinn sára brodd hennar, byrjaði hann eftir stundar- þögn. Það er að trúa á algóðan guð og treysta hans kærleika og forsjá í einu og öllu. Vegir guðs virðast stundum órann- sakanlegir mannlegum skilningi, en þrátt fyrir það sölnar ekki hið minnsta gras til moldar án hans vilja. Hans vilji er í öllu og hans kærleikur er einnig í öllu. Skiln- ingur á því, ásamt fuilu trausti á forsjá hans og elsku til mannanna, gerir okkur

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.