Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 28

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Page 28
122 KENNIMAÐUR N. Kv. Honum var það nóg að hafa ítök í sálum fólksins; það voru hin andlegu verðmæti, sem hann sóttist eftir. En hver var árangurinn af þessari við- leitni hans? Söfnuðurinn misskildi hann, forðaðist hann, dró dár að honum og storkaði honum á allar lundir, og hann varð að þola þetta allt, án þess að geta nokkuð að gert. Hann stóð einn með sína réttmætu umvöndunar- og vandlætingar- svipu reidda til höggs, en léti hann högg- ið ríða, hitti hann aldrei annað en loftið tómt. Já, hann stóð einn. Hina fáu, auðmjúku augnaþjóna, eins og Jóhannes meðhjálp- ara, var varla hægt að telja. Og meira að segja konan hans skildi hann ekki eða vildi ekki skilja hann. Hann var einn, — aleinn. Ha, hvað var þetta? Var ekki þarna jó- reykur fram með ánni? Jú, það var ekki um neitt að villast, og hann nálgaðist óð- um. Hópurinn, sem um morguninn hafði svívirt hann og kirkju hans, var að koma. Strax og hann hafði gert sér það Ijóst, lagði hann af stað, til þess að verða á vegi hans. Eins og eldingu hafði því sleg- ið niður í hann, að nú væri tækifæri til þess að lesa því pistilinn. Hreyfingar hans voru óstyrkar af innibyrgðum bardaga- hrolli. Hann náði veginum og gekk síðan í hægðum sínum til móts við hópinn, sem bar geyst yfir og nálgaðist fljótt. Þegar stuttur spölur var á milli, nam hann stað- ar og beið. Þetta var ungt fólk, piltar og stúlkur, sem þeysti þarna að honum á heimfúsum, másandi reiðskjótum, glaðvært og áhyggjulaust fólk, sem söng og hló, fólk, sem var sátt við lífið og sjálft sig. Þegar hópurinn kom svo nærri, að fólkið bar kennsl á séra Bjarna, sem stóð kyrr á miðjum veginum, hljóðnaði yfir. Þeir fremstu gripu í taumana og stöðvuðu hesta sína, svo að þeir, sem á eftir voru, urðu að gera það sama, án þess þó að vita vel, hvers vegna þessi töf varð. Það var eins og enginn vildi ríða fyrstur fram hjá prestinum. Rykský undan hófum hest- anna þyrlaðist sem snöggvast um hann. Þegar það var liðið hjá, varð hann fyrri til að taka til máls: — Gott kvöld. Nokkrir í hópnum tóku undir. Svo varð stutt þögn, eins og stillilogn á undan stormsveip, og svo skall óveðrið yfir. — Þið látið yður það sæma að svívirða kirkju gúðs og hans heilaga málefni kinn- roðalaust, með því að njóta synsamlegra skemmtana og nautna, þegar yður ber að beygja höfuð yðar í auðmýkt og til- biðja guð. Ég get ekki látið það hjá líða að minna yður á, að slík breytni getur ekki leitt til annars en dýpsta ófarnaðar. Með slíkri breytni gangið þið óhjákvæmi- lega hinn breiða veg glötunarinnar. En sál mannsins er sannarlega of dýrmæt til þess að hann fái átölulaust að búa henni eilífa kvöl. Sjáið að yður áður en það er orðið um seinan. Snúið hugum yðar að samfélagi við guð og leitið ánægju og gleði í því að lifa eftir kenningu hans. — Hópurinn var kyrr og hlustaði á orð prestsins. Margir voru með furðsuvip á andlitinu. Aftai’lega í hópnum heyrðust nokkrir skríkja, eins og þeim þætti þetta bezta skemmtun, Guttormur á Vatni var í hópnum. Hann hafði verið með þeim öftustu, en nú var hann að smáþoka sér áfram til þess að heyra sem bezt það, sem prestur sagði. Hann staðnæmdist ekki fyrri en hann var kominn fast að honum. Séra Bjarni heyrði niðurbældan hlátur færast í aukana og það espaði hann enn- þá meir. Hann harðnaði í ásökunum sín- um, án þess að yfirvega nokkuð það, sem hann sagði; hin lengi innibyrgða æsing, sem hlaðist hafði upp í huga hans, varð að fá útrás.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.