Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1941, Blaðsíða 24
118 KENNIMAÐUR N. Kv. Meðhjálparinn kom heim á hlaðið og gaf sig á tal við hann. — Alveg er ég grallaralaus yfir fólkinu. Skyldi enginn ætla að koma í þessu inn- dæla veðri? Presti var að verða svo þungt fyrir brjósti, að hann svaraði ekki; í þess stað tók hann upp úr sitt og leit á það. Klukk- an var tólf. í sama mund sáust tvær gamlar konur koma ríðandi heim að túnhliðinu. — Þetta lagast, sagði meðhjálparinn feginsamlega. Þarna er að koma fólk. Séra Bjarna létti vitund. Fram til klukk- an eitt var ekki loku skotið fyrir að ein- hverjir kæmu, en þó var eins og eitthvað hvíslaði því að honum, að hann mundi ekki fá tækifæri til að flytja ræðuna sína þennan sunnudaginn. Páll „sitt á hvað“ var nú kominn til þeirra og býsnaðist mikið yfir hinu ó- kristilega hugarfari fólksins, jafnhliða því sem hann var að hvima í allar áttir. Allt í einu brá hann snöggt við og greip í handlegg meðhjálparans. — Líttu á, Jóhannes. Þarna kemur fólk, margt fólk, sem ég er lifandi maður. Prestur og meðhjálpari litu báðir í þá átt, sem Páll benti. Út með ánni þyrlaðist upp jóreykur. Það varð ekki um það villzt, að þarna var allstór flokkur ríð- andi manna á ferð. Presti létti stórum. — Já, það er satt, sem þér segið, Páll minn. Það ætlar að fjölmenna núna utan úr sókninni. Þér skuluð fara að hringja, Jóhannes minn. Meðhjálparinn lét ekki segja sér það tvisvar. Hann þaut út í kirkju og þreif i klukkustrengina, svo að glumdi í öllu. Séra Bjarni stóð kyrr á hlaðinu og horfði á hópinn, sem nálgaðist óðum. Þarna voru áreiðanlega tuttugu manns á ferð, bæði karlar og konur. Hann var svo glaður, að hann ásetti sér að bíða á hlað- inu þar til það kæmi og bjóða það vel- komið. Hann lét sér nægja að kalla inn um gluggann til konu sinnar, að það væri að koma fólk, margt fólk. Nú var hópurinn kominn þangað, sem götur lágu af aðalveginum heim í Breiða- vað. En hvað var þetta? Allur hópurinn reið fram hjá, án þess að hægja á sér. Var þetta einhver meiri háttar sjónvilla? Nei, það var áreiðanlega ekki um neitt að vill- ast, hópurinn var kominn fram hjá. Presti varð svo mikið um þetta, að hann neri augun, en allt kom í einn stað niður. Há- vært tal og hlátrar bárust alla leið til eyrna hans. Þetta var áreiðanlega ungt fólk. En hvað gat það verið að fara? Hann þurfti náttúrlega ekki að spyrja, því að auðvitað var það að fara í skóginn til þess að skemmta sér og storka honum jafn- framt. Bræðin blossaði svo upp í honum, að honum varð erfitt um andardrátt. Hann hefði þurft að komast í talfæri við það núna, því að þá hefði það fengið að heyra nokkur vel valin sannleiksorð. En bölvunin var, að hann stóð þarna alger- lega máttlaus gagnvart þessari forherð- ingu og gat ekkert aðhafzt. Hann varð að þola það, að það riði hjá garði hans í þann mund, er messa skyldi hefjast, til þess að svala sínu syndum spillta hugarfari. Meðhjálparinn kom nú til hans. Hann hafði líka séð á eftir hópnum, og hann hafði gert sér grein fyrir því, hvert ferð- inni mundi vera heitið. Þetta óheyrilega tiltæki hafði ekki síður fengið mikið á hann en séra Bjarna. Því að aldrei þessu vant stóð hann langa stund og horfði á eftir hópnum, án þess að segja eitt ein- asta orð. Honum leizt ekki heldur á hin myrku ský heilagrar vandlætingar, sem hann sá hnyklast á enni séra Bjarna. En svo fór, að hann þoldi ekki þögnina til lengdar og sagði: — Nú þykir mér það, andakornið, taka af skarið.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.