Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 23
N, Kv. STÍNA LÆTUR ÁNETJAST 17 Frún rak upp skellihlátur eftir lesturinn og sagði: „En, Stína, — hvaðan hefur þú fengið þetta hræðilega krábull?" „Já, það er sú versta endaleysa, sem eg nokkurn tíma hef séð,“ svaraði Stína, „en myndin er þó einstaklega falleg.“ „Hver hefur fengið þér hana? Hefur ein- hver béðið þín, eða hvað, Stína?“ „Æ, það eru einhver bjánalæti úr strákn- um hjá honum Kristen Nielsen, — hann lætur alltaf eins og skrípi.“ „Kom hann með það um leið og hann skilaði kalkúnanum?" „Eg hef ekki séð neinn kalkúna, fyrr en frúin kom með þetta slæki þarna. Nei, hann fleygði þessu inn um eldhúsgluggann um leið og hann fór.“ „En hvernig stendur á þessu með Per Larsen í Örslövlille?" „Árann ætli eg viti það.“ „Ekki að nefna ,árann‘, Stína!" Jafnskjótt sem frúin var farin úr eldhús- inu, og Stína heyrði hana setjast inni í stof- unni, greip hún spjaldið, horfði lengi á myndina, las erindið og hvíslaði hugfangin með titrandi vörum: „Ó, — að nokkur lifandi maður skuli geta ort svona yndislega!" Hún spretti kjólnum sínum upp, stakk spjaldinu inn á bert brjóstið, fór að þvo eld- húsgögnin, og því skærari sem málmurinn varð og því heitara sem sólin skein í gegn- um rúðurnar, því fjörlegri varð þessi þrí- tuga stúlka, sem annars hvorki datt af né draup. Hún varpaði öndinni nokkrum sinnum — af þreytu eða vellíðan, hver ætli viti það? Svo fór hún að syngja: Það vill til um margan vænan mann, hann veltist í drabbi og sukki. Menn sækjast meira í vín en vatn, — hann vissi það líka, hann Jukki. Hann þambaði spíra þangað til hann þekkti ekki hrafn frá dúfu, og þegar hann haltraði heim á leið, þá hnaut hann um hverja þúfu. Hann rak sig á stau'r og rann og datt og reif sig allan í framan. — Við skellinn baulaði Skjalda hátt og skældi út af öllu saman. Hún söng þetta hægt og dró mjög seim- inn, og hún hefði ekki getað sungið sálm með öllu meiri fjálgleika. Þegar hún var að enda við það áhrifaríka atriði, þegar kýrin kom til sögunnar, lauk frúin upp eldhús- dyrunum, stakk inn höfðinu og spurði bros- andi: „Ert þú að syngja, Stína? Það var einhver að syngja." „Nei, það var enginn að syngja," svaraði Stína ólundarlega og hálfstygg. III. „Hvernig í dauðanum á eg að skilja, hvað Per Larsen er að vilja!" sagði prófastsfrúin um veturnæturnar, þegar vinnumaðurinn hjá Kristen Nielsen gestgjafa færði henni hálfa flesksíðu með alúðarkveðju frá Per Larsen í Örslövlille. „Og veiztu hvað, Stína, — hann kemur aldrei sjálfur til að heilsa mér. Hvað á eg að halda, Stína?" „Hvað ætli eg viti um það?“ svai'aði Stína. Á jólaföstunni kom hjáleigukonan, sem hafði barn Stínu í fóstri. Áður en hún kvaddi Stínu, bað hún prófastsfrúna að tala ofurlítið við sig. Því var vel tekið; frúin var að drekka liádegiskaffið og fannst sér skylt að setja upp hefðarsvip. „Jæja, Metta,“ sagði hún, þar sem hún sat í miðjum legubekknum með rjúkandi látúnsvélina fyrir framan sig, „mér er sagt, að telpunni hennar Stínu gangi vel í skól- anum.“ 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.