Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Side 26
N. Kv. Elias Kræmmer: Vitastígurinn. Helgi Valtýsson þýddi. (Framhald.) „Það er nú gott og blessað, Ivarsen, en hvað fær hann þá mikið í mánaðarlaun?“ „Mánaðarlaun? Hann fær auðvitað það sem liann þarfnast." ívarsen setti upp nef- klemmurnar og leit hvasst á Fíu. Honum virtist svipur liennar ósköp einfeldningsleg- ur. Það var einkennilegt með þessar lægri stéttir og skoðanir þeirra á peningamálum. Hún ætti bara að vita, hvað það kostaði á mánuði að fæða og klæða drenginn, en auð- vitað var það smámunir einir fyrir P. M. ívarsen. Það var ekki laust við, að það færi að þykkna í honum, en svo hugsaði hann, að bezt væri að segja henni allt afdráttar- laust. „En skiljið þér þá ekki, frú Stolz, að ég ætla að „adoptera“drenginn?“ „Adoptera, adoptera", tautaði hún. Það orð hafði hún aldrei fyrr heyrt á æfi sinni. „Já, taka hann að mér, sem væri hann skilgetinn sonur minn,“ sagði ívarsen. „En það er hann alls ekki,“ sagði Fía; hún roðnaði og leit undan. „Fjandinn sjálfur, að þér skulið ekki geta þagað, þangað til ég er búinn,“ sagði ívarsen reiður. Hann gleymdi alvoru augnabliksins og allri stillingu. „Jú — já, jæja.“ „Hann á að erfa mig, eignast allt, sem ég læt eftir mig-----.“ „Guð almáttugur, ég held ég fái slag,“ hrópaði Fía og gerði sig líklega til að þrífa í höndina á ívarsen; en hann kippti henni að sér, eins og hann hefði verið stunginn af býflugu. „Spaugið ekki með þess háttar! Þér gætuð svo sem fengið slag nógu snemma; enginn veit fyrir.fram, hvenær það kann að bera að höndum." „Þetta kom svo óvænt,“ sagði Fía og lok- aði augunum. „En það er með einu skilyrði, frú Stolz, einu skilyrði, heyrið þér--.“ Fía glaðvaknaði. „Nú kernur það, hugs- aði hún. Hann fitjar auðvitað upp á ein- hverjum „hundakúnstum", áður en lýkur.“ „Hann á héðan af að kalla sig Roosevelt Stolz ívarsen," sagði hann hátíðlega og stóð upp um leið og hann laut áfrarn og studdi báðum lófum. fram á borðið. Hann horfðist í augu við hana, hvasseygður og brúna- þungur. Hún vissi ekkert, hverju svara skyldi. Hún sat grafkyrr og starði fram fyrir sig. Hann hélt, að liún hikaði við og væri að velta þessu fyrir sér, og lá við að bræðin syði upp úr lijá honum á ný. „Er ívarsen kannske ekki nógu fínt - ha?“ „Jú, hamingjan góða, það er víst allt of fínt. Nei, þetta er alveg ótrúlegt, en hafið þér sagt Roosevelt frá þessu?“ „Nei, þér verðið fyrst að talfæra þetta við manninn yðar, svo að ég viti, hvort hann er þessu samþykkur, — síðan skal ég sjá um allt annað og ráðstafa því.“ Fía reyndi nú ekki aftur að ná í höndina á ívarsen, hún knébeygði aðeins, og það ekki einu sinni heldur tvisvar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.