Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Síða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Síða 39
VITASTÍGURINN 33 skal ekki einu sinni verða vatnsgusa eftir af keppinautunum!“ „Það er gott, drengur minn, það er gott. — P. M. ívarsen hefir aldrei dregizt aftur úr í neinni samkeppni.“ Hann þurrkaði sér um augu með handarbakinu og hækkaði síðan róminn: „En mundu það, að ef í harðbakka slær, þá geturðu slegið af 7% enn. — Hann var nú kominn út úr klökkvanum og inn á prósenturnar. Síðan lagði Roosevelt af stað í langferð sína með ströndum fram. „Gáðu nú vel að þér,“ kallaði ívarsen á eftir honum. „Hér er engin hætta á ferðum; við höfum góðan skipstjóra. og færan vélstjóra," sagði Roosevelt og veifaði húfunni í kveðjuskyni. Það var logn og blíðviðri, er þeir lögðu af stað. ívarsen hafði lagt svo fyrir, að þeir skyldu fara hægt niður eftir ánni, svo að mönnum gæfist á að líta, hve framtakssöm Verzlunin P. M. ívarsen væri.Ásumumhús- anna uppi í hlíðinni höfðu menn dregið fána að hún, rtieðal annars Kröger læknir. Roosevelt sá í sjónaukanum, að Abla og Tínus stóðu úti á eldhúströjrpunum og veifuðu. En þau hurfu brátt, er báturinn jók skriðinn jafnt og þétt í áttina til skerja- garðsins og úthafsins. Nú var hann rétt fram undan Straumhólminum. Roosevelt þekkti hvert sker, hvern vog og vík umhverfis allan hólminn. Það var einkennilegt að sjá það allt saman héðan að utan. Það var sem sæi hann alla bernsku sína á stó.ru, undurfögru málverki, Þárna uppi stóðu þau pabbi og mamma og veifuðu. Og lítt’ á: þarna kapp- hlupu hænsnin eftir flugum og pöddum inni á klöppunum, alveg eins og þegar hann lítill peyi! Að hugsa sér, að hann Roosevelt litli, sem einu sinni hafði hlaup- ið berfættur þarna um klappirnar og hólm- inn, stóð nú hérna og var meðeigandi þessa glæsilega báts sem fulltrúi hins ríka verzl- unarhúss P. M. ívarsen! Hann gat tæplega trúað því né skilið, hvernig allt þetta hefði viljað til. Það yrði svei mér gaman, þegar hann kæmi til Hvalsunds, þar sem Franz Jósef var í búðinni, að fara inn til sveita- kaupmannsins, skila nafnspjaldi sínu og segja: „Óski herra kaupmaðurinn að fá ó- dýrar og góðar vörur, þá get ég mælt með verzlun vorri P. M. ívarsen. — Hamingjan góða, hvað Franz Jósef myndi reka uþp stór augu, hugsaði Roosevelt. Vesalings Franz Jósef, sem í fimm ár hafði þrælað sem að- stoðarmaður hjá þessum knífna náunga fyr- ir einar þúsund krónur árlega og fæðið. — Ætti ég ekki að fá fóstra til að ráða harin sem birgðastjóra heima? ------ Þeir fóru fram hjá Hrosshólmanum svo nærri, að við sjálft lá, að þeir gætu strokið hendinni eftir brimsörfinni klöppinni. Hún var gulgrá á lit með hvíta saltrák í flæðarmáli. Öll þessi lilið Hrosshólmans var eins og sléttur og fágaður ljósahjálmur; þar var ekki einu sinni sprunga, sem hægt var að stinga fingri í. Roosevelt varð lrugsað til allra þeirra, sem hér höfðu velkst í brim- garðinum og barizt við að komast upp á skerið. Honum varð hugsað til þess, að hér hefði hafið leikið sér að þeim eins og kött- ur að mús. Fyrst skolaði það þeim upp á klapparkollinn, svo að þeir fundu sem snöggvast fast land undir fótum, og sáu bregða fyrir sem snöggvast blikleiftri vitans hinum megin sundsins — sekúntulöng von um björgun! Þá kom næsta brimbrot æð- andi og dró þá aftur ofan, upp og ofan, unz þeir að lokum hvíldu rólega á þangsæng hafvöggunnar miklu. — Honum varð hugs- að til „Sanckó“ gamla, sem megnað hafði að synda gegnum brimgarðinn. Skyldi hann hafa orðið var hinna, sem sukku? Ef til vill hafði hann reynt að bjarga húsbónda sín- um? Er þeir höfðu beygt fyrir Hrosshólmann, tók sjór að ýfast, og undiraldan að vaxa, og í austri dimmdi í lofti.---- ívarsen ráfaði fram og aftur um skrif- stofugólfið og var að hugsa um Roosevelt. Hann iðraðist þess nú, að hann skyldi hafa

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.