Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Blaðsíða 42
36 VITASTÍGURINN N. Kv. eftir var óttinn, ægilegur og hlífðarlaus. Hann varð að setjast á stein og snúa bakinu í vindinn. Hann verkjaði í alla limi, og hann hnipraði sig saman í kuðung. Nú var ívarsen ósköp aumur og lítilmótlegur. Hann hefði glaður gefið hundrað þúsundir króna til þess að vita drengnum borgið og vera sjálfur kominn heim aftur. En nú var enginn áheyrandi annar en stormurinn, og hann kærði sig ekki vitundar ögn um hundrað þúsund króna. Hann þaut og þeyttist áfram, svo að blístraði og hvein í gjótunum og hinum gisnu stráum, sem földu sig visin og lágkúruleg í klappar- sprungunum. Loksins komst hann þó upp á brúnina og sá heim að vitaturninum, beint fram undan sér. Guði sé lof, nú kæm- ist hann þó bráðum í húsaskjól! Hann staul- aðist áfram yfir berar klappirnar, en varð að nema staðar öðru hvoru, því að í storm- hviðunum gat hann aðeins með herkju- brögðum haldið sér á fótunum. Loks náði hann í hurðarsnerilinn og kom svo inn í stofu til frú Fíu Stolz. „En almáttugur, eruð það þér, sem eruð á ferð í öðru eins veðri?“ sagði hún forviða og sló saman höndunum. „Þér farið nú víst nærri um. það,“ svaraði ívarsen, gramur yfir svona heimskulegri spurningu. „Eruð þér ekki hrædd?“ spurði hann svo og leit á hana. „Hrædd?“ Fía hló góðlátlega. „Onei, við erum svo vön þessum hljómleikum hérna úti á hólminum." „En drengurinn minn — drengurinn minn er úti í þessum stormi." „Hann hefir eflaust leitað hafnar ein- hvers staðar," sagði hún rólega. „Haldið þér það? Eruð þér viss um það, frú Stolz?“ „Nei, viss er maður auðvitað aldrei; en við Adam vorum að tala um þetta rétt áð- an.“ Adam kom inn i þessum svifum og nam staðar í dyrunum og horfði steinhissa á ívar- sen, sem nú var kominn úr blautri kápunni og sat í stórum hægindastól afa gamla admíráls. „Við erum að tala um Roosevelt, sem er úti í þessu fárviðri,“ sagði Fía. „En góði ívarsen, þér skiljið víst, að hann mun hafa leitað einhverrar hafnar hér nær- lendis.“ Ivarsen skildi ekkert í því, að þessar manneskjur skyldu geta verið svona róleg- ar. Honum var algerlega ókleift að sitja kyrr, Hann flutti sig yfir í legubekkinn, staulaðist síðan út að glugganum og leit út og settist síðan aftur í hægindastólinn. Adam fór aftur upp í turninn. Hann undi sér bezt þar uppi, þegar stormasamt var; því að þaðan gat liann séð langt á haf út í stóra kíkinum. Fía kom inn með rjúk- andi kaffibolla handa ívarsen. „Þér hafið gott af því, ívarsen, það fjörgar blóðið.“ „Æ, það er nú ekki mikið eftir til að fjörga,“ sagði ívarsen. Hann reyndi að taka bollann og. drekka úr honum, en var svo skjálfhentur, að Fía varð að taka bollann af honum og halda á honum, meðan ívarsen saup úr honum. „Vesalings ívarsen, þér hafið víst orðið alvarlega hræddur." Hún ætlaði að strjúka yfir hárið á honum, en hann vék höfðinu snöggt til hliðar og sagði: ,,Æ, verið þér ekki að þessu fálmi og fikti við mig, frú Stolz!" Fía blóðroðnaði, og henni rann í skap og hugsaði: „Nei, þessum bannsettum labbakút skal ég svei mér ekki sýna neina meðaumkun!" Nú heyrðu þau Adam koma hratt ofan stigann úr turninum, og lá við, að hann væri vitund skjálfraddaður, en hann sagði: „Ég sé litinn vélbát, sem beitir hart fyrir Saltsker til þess að sneiða hjá Hrosshólma- boðunum." Ivarsen hafði staðið upp og starði nú á Adam með opinn munninn. Kvíðinn hafði fjarað í honum, og hann var tekinn að finna til öryggis, er hann sá, hve
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.