Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 49

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 49
N. Kv. VITASTÍGURINN 43 hættir við að sjóða upp úr, og að á vegum ástarinnar spretta margir leyni-þyrnar, sem valdið geta sárum ævilangt-------“. Abla gamla fékk nú einnig áhyggjur út af þessu. Henni þótti mjög vænt um Aur- óru, og hafði frá fyrstu stundu lagt alla ást sína á þetta munaðarlausa barn, — og þá einna helzt sökum þess, að hún hélt í fyrstu, að Gottlieb ætti barnið; en seinna aðeins sökum þess, að hún þráði að hafa einhverja lífveru til að þykja vænt um, og þá lielzt einhvern móðurleysingja. . . . Hún iá stöð- ugt andvaka á nóttunum, og oft kom það fyrir, að hún varð að fara á fætur um miðja nótt og setjast fram í eldhús með prjóna sína. Það var eins og dálítil afþreying í því. Kröger læknir veitti þessu eftirtekt og varð áhyggjufubur út af Öblu. Hann ásetti sér því að fara upp í vita og biðja frú Stolz um að spjalla við Öblu. Það var svo algengt að senda eftir Fíu, þegar eitthvað amaði að einhverjum. Hún hafði sína sérstöku að- ferð og var svo hjartagóð og nákværn í allri umgengni, hvort sem þjáningarnar stöfuðu af andlegum kvölum og áhyggjum eða af fæðingarhríðum og barnsfararsótt, eins og læknirinn komst að orði. Kröger fór síðan upp í vita. Nú var hann orðinn því svo vanur að arka upp „Vitastíg- inn“, að honum var það leikur einn. Hann stiklaði nú eftir Skjaldbökuhryggnum í Feninu og gat nú vel stokkið vfir gjána, þar sem gamla brúin var, tæki hann aðeins dá- Htið tilhlaup. „Vitastígurinn" var svei mér ekki svo erfiður, hefði maður ekki því þyngri drápsbagga á bakinu. Fíu þótti einkennilegt, að læknirinn skyldi biðja hana að reyna að „lappa upp á“ Öblu gömlu. Það stæði þó sennilega hon- um sjálfum næst að fást við þess háttar. Hún hefði aldrei gefið sig fram sem skottu- læknir, með blóðtöku og særingarþulur og þess háttar. Ýmsir skottulæknar gátu nú annars verið skolli duglegir, þótt læknarnir vildu aldrei viðurkenna það. — Það stóð þó ekki á löngu, áður en Fía lét tilleiðast að taka að sér að hitta Öblu gömlu, úr því að læknirinn á annað borð hafði beðið hana um að gera það fyrir sig. Hún gleymdi aldr- ei nóttunni, þegar hann bjargaði lífi Bene- diktu — já, auðvtað með aðstoð Guðs. Hún stóð lengi frammi í ganginum og velti fyrir sér, hvort hún ætti að setja upp skrauthattinn eða svörtu hettuna. Hattur- inn var nú fínn og uppdubbaður, með stórri, svartri strútsfjöður, sem Roosevelt hafði gefið lienni í staðinn fyrir páfugls- fjaðrirnar tvær, sem ívarsen hafði brotið, þegar hann settist ofan á þær forðum — og eiginlega hefði hann, en ekki Roosevelt átt að borga þær! Svarta hettu-,,kjusan“ átti nú bezt við jarðarfarir og þess háttar alvarleg tækifæri, því að hún var svört, en hatturinn blár með gulum deplum. En þar sem hún var nú ekki að fara í jarðarför, heldur átti hún að fara í heimsókn og fjörga Öblu gömlu upp aftur, þá afréð hún að setja upp skrauthattinn bláa. — Abla sat við eldhúsborðið og var að prjóna, en Tínus sat á eldiviðarkassanum að vanda. Inndæll kaffi-ilmur streymdi á móti Fíu, þegar hún opnaði dyrnar. Tínus stóð þegar upp og hneigði sig, því næst flýtti hann sér að ljúka úr bollanum og laumaðist síðan út. Það tók all-langa stund, áður en Fía gat þítt tortryggnisklakann úr huga Öblu gömlu, og hún varð að smáfikra sig áfram, hægt og gætilega. Henni fannst þetta einna líkast því, og þegar hún væri að hreinsa lauk: þá varð að flysja livert skurnið á fætur öðru. Abla var auðvitað dálítið tortryggin í fyrstu. Hún skildi ekkert í þessum óvænta áhuga, sem Fía hafði allt í einu fengið fyrir hennar persónu. Og þar að auki kom hún stígandi í fína hattinum sínum með strúts- fjöðrinni! Það var þó hvorki afmælisdagur hennar né læknisins núna! Fíu skildist brátt, að hún hafði verið óheppin með hattvalið; hann átti ekki al- o*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.