Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 50

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1945, Qupperneq 50
44 VITASTÍGURINN N. Kv. xnennilega við þetta tækifæri. Nei, svarta „kjusan“ liefði verið betur viðeigandi. Nú var samt um að gera að koma Öblu gömlu á skriðinn. Hugmyndaflug Fíu var ætíð á harða spretti, og henni virtist Abla garnla blátt áfarm minna um gamla rottu, sem ginna þyrfti út úr holu sinni með steiktu fleski. Fía vendi því smám sarnan sínu kvæði í kross og tók að drepa á „gamla daga“, Bramer-piltar og þá sérstaklega sút- arann gamla. Þá fyrst tók að lifna yfir Öblu gömlu, og svipur hennar að hýrna, og hún fór nú að segja frá ýmsu óbeðin og óspurð: „Já, það var nú, þegar ég kom að Bjarka- setri fyrir fimmtíu árum-------“. Og Abla lét nú dæluna ganga, og Fía hlustaði með sívaxandi áhuga. Hún sá þetta allt saman fyrir sér, stóra húsið, mannfjöldann og mat- inn, og þá ekki sízt skrautið og allt um- stangið, er haldin voru hin stóru samsæti á Bjarkasetri. Abla sagði henni frá haustgild- unum, sem haldin voru öllu starfsfólkinu á bænum, og þá var dansað í lilöðunni fram á rauðan morgun--------- Nú tók að lyftast brún á Fíu. Henni skildist sem sé, að nú væri Abla tekin að nálgast þungamiðju málefnisins; en hvað það væri í raun og veru, sem hún gerði sér slíkar áhyggjur út af, — það var Fíu enn ekki ljóst; en eitthvað var það nú samt. Skyldi það vera einhver glæpur, sem Abla hefði verið viðriðin á einhvern hátt, þegar hún þénaði á Bjarkasetri? Það gengu nú svo margar furðulegar sögur um lífið þar á bænum í gamla daga, einkum á dögum gamla sútarans. Ef til vill væri það eitthvað þess háttar, sem þjáði Öblu gömlu og þjak- aði: Barnsmorð eða önnur leyndarmál, sem hún vissi um? Fíu skildist, að Abla myndi vera að velta fyrir sér, hve mikið henni myndi óhætt að láta uppi við Fíu. „Já, við dönsuðum í hlöðunni fram á rauðan morgun, Já — já, — ég var nú ung á þeim árum og get líklega sagt yður það, frú Stolz.“ Fía kinkaði kolli kröftuglega og hlustaði af öllum mætti: „------Svo eignaðist ég drenginn sumar- ið eftir,“ hún þagnaði og varpaði öndinni. „Æjá, hamingjan góða, það hefir nú svo marga lient, Abla,“ sagði Fía með sannfær- ingarkrafti, — „það var nú engu síður sök föðursins en yðar!“ Fía lagði sig nú alla fram um að fá Öblu til að ljósta upp, hver faðirinn hefði verið, en árangurslaust. Þar var Abla þögul sem gröfin. Tínus var ekki nefndur á nafn, og Fíu gat ekki dottið í hug, að sá „apaköttur" hefði getað tælt nokkra stúlku! Nei, hún grunaði sútarann; í jreim efnum hafði hann verið hættulegur náungi. Skömmu síðar sagði Abla: „Ég hefi átt að annast barnið mitt sjálf, frú Stolz. Það er það ,sem sækir að mér nú um næturnar og einnig á daginn, síðustu árin.“ , „Tíminn læknar öll sár, Abla. Einhver skyssan hefir okkur öllum orðið á, einhvern tíma á ævinni. Við erum öll breyzk að eðlis- fari og verðum að hugga okkur við það.“ Nú andvarpaði Fía, og síðan varð svolítil þögn. „Ef ég aðeins vissi, hvað hefir orðið af drengnum, hvort hann er dáinn eða enn á lífi og heiðarlegur maður, þá fengi ég ef til vill frið í hjarta." Abla sat lengi með prjóna sína og starði út í bláinn. „Æ, sé ekki annað um að ræða, þá skal ég segja yður, að það getur Adam hæglega grafið upp. Presturinn hefir eflaust fært það í bækur sínar, hvenær drengurinn var skírð- ur og fermdur." „Já, hann var að minnsta kosti skírður, því að sútarinn skrifaði sjálfur nafnið á miða.“ „Hvað heitir hann þá, Abla?“ „Ismail-------“. „Það er einkennilegt nafn.‘ „Já, sútarinn gamli setti svo skringileg nöfn á allt mögulegt. Uppi á Hlynahrygg bjuggu til dæmis á hans tímum hjón nokk-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.