Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 14
148 UTANFERÐ FYRIR 45 ÁRUM N. Kv. yrði að sitja. Skrokkunum öllum var svo varpað fyrir borð. Þess hefir áður verið getið að illa var spáð fyrir líðan sauðanna, sem voru á þilfarinu. Víst var líðan þeirra ekki góð, því fór fjarri, en þeir lifðu þó allir ferðina af. Vitanlega var það að þakka hreina loftinu, er þeir nutu, og því að vera lausir við hitann og svækjuna í lestum skipsins. Frá sjónarmiði mannúðarinnar voru þess- ir flutningar á lifandi fé fyrir neðan allar hellur, eins ófullkominn og útbúnaðurinn var. Eg tel líklegt, að sauðirnir hefðu allir lifað ferðina af, ef tök hefðu verið á að brynna þeim. Það er sennilegt, að sauðaeigendum hefði ekki dottið í hug að leggja skepnur sínar í svo þrælslega meðferð, sem hér var um að ræða, ef þeim hefði verið hún Ijós. Ekki man eg, hversu margt sauðanna drapst, en eg held að það hafi skipt hundruðum. Eg tel og sennilegt, að sauðirnir hefðu allir komizt lifandi til Englands, ef ferðin hefði ekki tekið nema 4 sólarhringa, eins og upp- haflega var áætlað. Loks komum við til Liverpool eða þess hluta hennar, er nefnist Birkenhead, eftir sjö sólarhringa ferð. Zöllner var þar fyrir og kom þegar um borð. Hann var áhyggjufull- ur út af útiiti sauðanna og hve ferðin hefði gengið seint. Var hroðaleg sjón að sjá þá, er þeir runnu jarmandi í land eftir landgöngu- brúnni. Frjálslegir voru þeir og föngulegir eftir veru sína á afréttum um sumarið. Nú voru þeir þunnir og kúrulegir eftir ófrelsið í skipalestunum og þjáningar í ferðavolkinu yfir hafið. Mér rann til rifja að sjá hvað jreim liafði hrakað á ekki lengri tíma. Fyrr meir höfðu sauðirnir verið reknir á graslendi eftir ferðavolkið og aldir þar í viku, áður en þeirn var slátrað. Nú var því ekki lengur að heilsa. Fyrir aldamótin síð- ustu voru sett lög í Bretlandi, sem þrengdu mjög að innflutningi lifandi fjár þangað vegna sótthættu. Þegar hér var komið, varð að slátra sauðunum strax í sóttkví. Um kvöldið buðu yfirmenn skipsins mér til drykkju með sér, en allt fór þar fram með hófi. Ekki var Lund gamli þar með. Hélt eg svo til í skipinu til næsta morguns. Þá heim- sótti mig Friðbjörn Bjarnason frá Grýtu- bakka. Hafði hann farið út með sauðaskipi fyrr um haustið og var í þann veginn að snúa heimleiðis. Kvaddi eg nú skipverja og hélt inn í borgina með Friðbirni. Naut eg þar leiðsagnar hans, því hann var orðinn þar nokkuð kunnugur. Vorum við að spíg- spora um borgina fram eftir deginum og snæddum morgunverð í matsöluhúsi. Úr því eg hafði nú náð því marki að komast „út fyrir pollinn“ og hafa erlenda jörð undir fótum, þótti mér of snemmt að hverfa strax heimleiðis aftur. Mig langaði til að kynnast lífinu í Bretlandi lítið eitt. Tók eg því það ráð að kaupa farseðil með járnbrautarlest norður til Edinborgar. Þar átti eg góðkunningja, Garðar Gíslason stór- kaupmann, er nýlega hafði sett sig niður í Leith. Margt bar fyrir augu á því ferðalagi, en á fáu sérstöku festir maður auga á svo hraðri ferð. Víða sá eg mannabýli og búpen- ing á beit, sem leit upp, þegar lestin brun- aði fram hjá. Til Edinborgár eða Leith, sem er hafnarborg liennar og samvaxin henni, komum við síðla kvölds. Á járnbrautarstöð- ina kom unglingspiltur og bauðst til að bera ferðakoffort mitt, sem var nokkuð þungt, og þáði eg það. Eg vissi, hvar Garðar hafði skrifstofu sína, og fórum við þangað, en þar var allt harðlæst. Ráðlagði burðarpilturinn mér þá að fara á gistihús, sem heitir Sailors Home, og féllst eg á á það. Þegar þangað kom, hitti eg forstöðumann stofnunarinnar, feitan ístrukarl. Eg tjáði honum frá högum mínum, að eg væri útlendingur, öllum ókunnugur og vantaði samastað í bráðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.