Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 54

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 54
188 BÆKUR N. Kv. Valdimai V. Snævair: Syng Éuði dýrð. Útgef. Þorsteinn M. Jónsson. Ak. 1946. Valdimar Snævarr er löngu þjóðkunnur fyrir sálmakveðskap sinn. í sálmakveri þessu eru rúmlega 40 sálmar, hafa sumir birzt áð- ur í blöðum og tímaritum, en aðrir eru ný- ir. Eg ætla mér ekki þá dul að fara að dæma um sálma Valdimars, en hitt dylzt engum, sem í þeim blaðar, að þarna er einlægur trú- maður að yrkja um sín helgustu mál. Frá- gangur bókarinnar er hinn snotrasti. Akureyri, 5. desember 1946. Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Umsagnir um bækur. Þegar „Bókin mín“ eftir Ingunni Jóns- dóttur kom út, þá sagði prófessor Sigurður Nordal í ritdómi um hana: „Þessi bók hefur öll einkenni þeirra bóka, sem lengi eiga að lifa. Hún er sönn, 'einlæg, blátt áfram, skemmtileg, spakleg. Hún er skrifuð á tímamótum. Hún bjargar ekki einungis frá gleymsku broti af sálar- lífi merkrar konu, heldur brotum af menn- ingu, sem er að hverfa, a. m. k. í bili. Hver veit þó, nema eitthvað af þeim steinum, sem nú er verið sem óðast að fleygja burtu, verði síðar hornsteinar í háborg framtíðar- innar.“ Sigurður Guðmundsson, skólameistari, segir í bréfi til Sigfúsar Halldórs frá Höfn- um um bók Ingunnar Jónsdóttur, „Minn- ingar“: „Afskaplega þótti mér gaman að minn- ingum Ingunnar frá Kornsá. Þær rifjuðu svo margt upp fyrir mér, sem móðir mín kenndi mér á æskudögum og sagði mér frá fólki og hefðarmönnum í Vatnsdal og Þingi. Þær minntu mig á vísur, sem hún kenndi mér og hafa eigi komið í hug 40—50 ár. Málfar og skýrleiki hennar er hvort tveggja í bezta lagi.“ í hinni nýju bók Ingunnar, „Gömul kynni“, eru stórir kaflar, sem ekki hafa áður komið á prent: Búendur í Vatnsdal laust fyrir 1880, Æviágrip Björns Sigfússonar, dýrasögur, dulrænar sögur og ævintýri. í bókinni eru 15 myndir. Um bók Þórleifs Bjarnasonar, „Og svo kom vorið“, segir Halldór Kristjánsson í rit- dómi: „Það vissu menn fyrr að Þórleifur kunni að segja sögu og lýsa náttúru Vestfjarða, jafnt ógnum skammdegisins sem mildi sum- arblíðunnar. Nú sé eg að hann er líka skáld, — góður liðsmaður á sviði hins lifandi orðs skáldskaparins. Eg tel þessa bók merkilega, af javí hún sýnir það, að höfundurinn er skáld, sem kann til verka og fer eigin ferða. Fyrir hlut- laus augu hversdagsmannsins leiðir hann persónur sínar, glöggar og lifandi, lífsskoð- un þeirra, stefnu og manngildi. Og söguna segir hann svo, að menn hlusta með eftir- væntingu til síðasta orðs. Því á hann víst að ná til fólksins. Eg fagna þessu kveri og vænti þess, að Þórleifur eigi eftir að skrifa fleiri hetjusög- ur fyrir okkur, um þann manndóm og lífs- trú, sem fóstrast hefur með þjóð hans við brjóst landsins og opna henni leiðir til sigurs og menningar, — við skulum segja nýsköpunar til að tolla í tízkunni — þegar kofarnir hrynja yfir skýjaglópa og blaðrara. Öllum vil eg ráðleggja að lesa þetta kver, en Jreir, sem vilja fyigjast með þróun ís- lenzkra bókmennta verða að gera það. Hér fer kunnur rithöfundur inn á braut, sem mun afla honum viðurkenningar, ef hann heldur áfram svo sem horfir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.