Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 39

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 39
N. Kv. DYVEKE 173 þess að konungur tæki eftir henni. En hann reið fram hjá þekn öllum og horfði á ýmsa vegu, því að hann kom ekki auga á þá, sem hann var að svipast að. Allt í einu stöðvaði hann hestinn, beygði höfuðið hæversklega og rétti frarn höndina. ,,Dyveke,“ mælti hann, „viltu vera maj- bfúður mín og njóta valds og sæmdar með ■ mér í dag?“ Hann beið ekki eftir svari hannar, heldur tók liann hana í fang sér, setti hana fyrir framan sig og reið aftur þangað sem borðin stóðu. Ymsir hrópuðu samsinningaróp, en ekki eins margir og áður. Sums staðar lieyrð- ist jafnvel Imeyxlunarskvaldur. Betri borg- arar bæjarins voru sem þrumulostnir yfir kjöri konungs, og konur þeirra lágu ekki á því, að þær væru bæði vonsviknar og gram- ar. Dyveke sá þetta og fölnaði við; en þá mætti hún augnaráði konungs, sem ljóm- aði alveg eins og nóttina áður, og þá glaðn- aði aftur yfir henni. „Dyveke, litla dúfan mín,“ hvíslaði hann í eyra henni og kreisti hönd hennar í laumi, svo að hana kenndi til. „Lifi majgreifinn og majbrúður hans!“ hrópaði bæjarstjórinn. • Hljóðpípur og og bumbur tóku undir og mannfjöldinn réð sér ekki fyrir kæti. „Þarna gerði hans náð okkur ljótan grikk,“ sagði Hinrik Bagge við Jörgen Han- sen, þar sem þeir stóðu til hliðar. „Því þá það?‘ ‘svaraði Jörgen. „Því verður ekki neitað, að Dyveke er langlaglegasta stúlkan í Björgvin, svo að við getum unnað henni tignarinnar daglangt.“ ,,Guð má vita, hvað Sigbrit segir, þegar hún fréttir þetta,“ mælti garðfógetinn. „Ef eg hef lesið rétt augnaráð konungs, þegar hann horfði á Dyveke, þá má leggja nóttina við.“ ,,Hvað betra ætti að Hggja fyrir hollenzku stelpunni en að ganga í augu konunginum?" sagði kona hans. „Ef það hefði verið heiðar- leg borgaradóttir, þá væri öðru máli að gegna.“ „Þú mátt skammast þín, kona,“ svaraði fógetinn. „Farðu og bjóddu hans náð Vi- beke, og vittu til, hvort hann bítur á krók- inn.“ Móðir Vibeke lygndi augum til himins og tók ábótann, sem hjá þeim stóð, til vitnis um, hve háskalegan munnsöfnuð maður hennar hefði. — En Jörgen Hansen fannst réttast að ganga til Sigbritar og segja henni frá þessu. Hann hafði líka ráðið af augna- ráði konungs, að hann mundi ekki hafa kos- ið Dyveke eingöngu vegna fríðleikans. Hann fór að hugsa um það, sem dóttir hans hafði sagt honum um hvarf hennar nóttina áður, og gat sér nokkurn veginn rétt til um ástæðuna. Hann bjóst við, að allt gæti það lagazt við góða gjöf frá konungi, því að varla mundi Sigbrit slá hendi við henni. Svo var setið að borðum og drukkið fast. Albrekt stóð á bak við stól konungs og þjónaði honum, en Eiríkur Walkendorf sat fyrir neðra borðenda. Hvert skipti, sem kon- ungur tók til máls, þögnuðu allir aðrir; svo fíknir voru menn í að heyra orð hans og svo sjaldgæft var þar að heyra konung tala, að mönnum fannst það ganga ævintýri næst. Þarna sat konungurinn, þrekinn og kraftalegur. Rödd hans var djúp og skýr, augun hvöss og greindarleg. Enginn gat bú- izt við, að hann talaði af sér, þótt ölvaður væri. Eiríkur Walkendorf tók eftir, hvern- ig ljóminn af augnaráði hans lifnaði, þegar hann hallaðist að Dyveke. Hann talaði svo lágt við hana, að enginn heyrði orðaskil, en hún roðnaði og hló og horfði glaðlega í móti. Borðhaldið stóð lengi, en loksins var því lokið, og þá var borðum hrundið, svo að dansinn gæti byrjað. Fyrst kvað við pípu- blástur og bumbusláttur, en þagnaði, þegar konungur leiddi Dyveke fram á sviðið. Á eftir þeim kom Eiríkur Walkendorf með fógetafrúnna og næstur Hinrik Bagge með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.