Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Blaðsíða 15
N. Kv. UTANFERÐ FYRIR 45 ÁRUM 149 Hann kvað skynsamlegasta ráðið, sem eg gæti tekið, væri að setjast að á Sailors Home í bili. Eg var þar svo nokkra daga og líkaði vel. Hafði þar gott fæði og fremur ódýrt. Þar voru allmargir gestir, aðallega sjómenn. Einn þeirra var kolsvartur negri. Eg innti bann eitt sinn eftir, hvort hann væri sjómað- ur. „By and by“ (við og við) var svarið. A vissum stað voru skóburstar ásamt skó- svertu, og áttu hótelgestir sjálfir að bursta skó sína. Eitt sinn hafði ístrukarlinn orð á því við mig, að eg burstaði ekki skó mína nógu vel. Eg bar því við, að það tæki svo langan tíma. „Are you busy?“ (áttu ann- ríkt?) spurði hann háðskur á svip. Hann vissi, að eg hafði ekkert fyrir stafni. Þessa dagana notaði eg til þess að kynna mér borgina. Mér varð starsýnt á stóra myndastyttu af. Robert Burns, skozka skáld- inu, sem Skotar elska og dást að, líkt og við elskum Jónas Hallgrímsson. Eg keypti kvæðabók Burns hjá fornbóksala fyrir einn shilling og á hana enn. Langfallegasta og tilkomumesta strætið í Edinborg er Princess Street. Við það er hið mikla minnismerki Walt.er Scotts. Eg sá strax í hendi mér, að ef eg ætlaði að dvelja þarna um hríð, mundu peningar mínir fljótt ganga til þurrðar. Fór eg því að skyggnast um eftir atvinnu. Mér var sagt, að félag eitt stórt, er nefndist North British Railway Company, hefði mikið umvélis og þyrfti á mörgum verkamönnum að halda. Leitaði eg þá eftir atvinnu á skrifstofum félags þessa og fékk hana eftir nokkra vafn- mga og umstang. Áður hafði skrifstofustjór- mn yfirheyrt mig og spurt mig spjörunum dr, svo sem urn aldur minn, kunnáttu o. m. fh Hófst nú vinnan hjá félagi þessu, og fór hún fram niðri við hafnarkvíar. Var hún í því innifalin að ferma og afferma vöru- vagna, sem hestar gengu fyrir. Skozku hest- arnir eru afar stórir og fallegir. Þeir eru brúkaðir hvem virkan dag árið um kring, 10 tíma á dag, og eru þó feitir vel og gljá- andi á skrokkinn, auðsjáanlega aldir og hirt- ir vel. Ekki féll mér vinnan alls kostar vel fyrst í stað. Erfitt þótti mér að labba með heil- sekki standandi upp á endann á annarri öxl- inni, en þannig voru þeir látnir síga niður úr vögnunum, og hætti þá viðvaningum við að missa jafnvægið á byrðinni og missa hana, en þá urðu þeir fyrir skömmum frá yf- irmönnunum. Ennfremur þurftum við oft að bera þunga kassa á sama hátt, og vildi þá öxlin sárna. En við allt þetta vandist eg brátt og stóð exki öðrum að baki. Mér féll að öllu samanlögðu vel við sam- verkamenn mína, þó að þar væri misjafn sauður í mörgu fé. Einn þeirra var fyrst alí- herralegur yfir mér og hortugur í meira lagi. Eitt sinn hrifsaði hann til mín. Mér rann í skap, greip hann og fleygði honum flötum til jarðar. Þá hlógu hinir dátt og sögðu: „He is strong". En svo brá við, að eft- ir þetta var sá, er byltuna hlaut, auðmjú.kur og fleðulegur við mig. Við unnum frá 6 til 6 og höfðum tvisvar matarhlé, sinn klukkutímann í hvort skipti. Eg leigði hjá ekkju einni að nafni Mrs. Brown. Henni greiddi eg 11 shillino;s á viku O O O fyrir fæði, húsnæði og þjónustu, en kaupið var 19 shillings. Til morgunverðar og kvöld- verðar fékk eg hafragraut og mjólk, te, franskbrauð og smér eftir vild. Skotar eru snillingar í að tilreiða bæði hafragraut og te, en kaffi er þar lélegt skólp. Til miðdegis- verðar fékk eg jafnan kjötmeti, á sunnudög- um „ham and eggs“. ” OO í borginni var örfátt íslendinga. Garðar Gíslason er áður nefndur. Þar var og Har- aldur Sigurðsson Rangvellingur, en hann fór brátt til Noregs, því að þar átti hann kærustu. Enn var þar Ólafur Proppé, þá unglingur, við verzlunarnám. Dauf þóttu mér jólin þenna vetur. Skotar hafa sem sé ekkert jólahald. Því meira er um að vera á gamlaárskvöld. Þá var uppi fótur og fit um alla borgina, sukk og fyllirí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.