Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Qupperneq 19

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1946, Qupperneq 19
N. Kv. BÁTSHÖFN BJARGAÐ 153 orðinn svo yfirísaður, að hann kornst ekki lengra og kominn að því að sökkva. Þá bað formaðurinn á Garðari alla mennina að vera viðbúna stjórnborðsm-egin, og freista þess að kasta sér yfir í Garðar um leið og honum væri rennt fram hjá. Auðvitað var þetta hið mesta glæfraspil í náttmyrkri og stórsjó. Því næst röðuðu hásetar á Garðari sér á þilfarið, til að taka á móti mönnunum, en formaður einn var í stýrishúsi. Þetta heppnaðist fremur öllum vonum. Þrír mennirnir köstuðu sér allir í einu yfir í Garðar, en sá fjórði flækti fótinn í línu, og leit um stund út fyrir að hann yrði eftir, en á síðustu stundu auðnaðist honum að kasta sór yfir á stýris'húsið á Garðari. Voru nú mennirnir allir komnir yfir í Garðar alls- lausir, því að ekki gátu þeir haft neitt með sér. Nestiskassar þeirra og allt dót annað varð eftir í Geysi. Mátti segja að björgun þessi tækist giftusamlega, því að ekki er það heiglum hent að stökkva þannig milli yfir- ísaðra báta í stórsjó, myrkri og afspyrnuroki. Þar hvarf svo Geysir í sortann, marandi í kafi og kominn fast að því að sökkva. Eftir vindstöðu og dýpi var álitið, að Garðar væri út af Streitishvarfi, þegar mönnunum var ibjargað. Voru þeir þreyttir og þjakaðir eftir volkið, og var búið um þá í hásetaklefanum, þótt þröngt væri. Því næst var skipt vöktjum á Garðari, og voru tveir og tveir á vakt. Ekki var talið ráðlegt að halda áfram um nóttina, og var bátnum andæft á 30 faðma dýpi. Þegar birta tók, dró aðeins úr veðrinu, en sjó tók mjög að þyngja. Áleit formaður- inn, að þeir væru staddir út af Hlöðu, en það er alþekkt sker út af Streitishvarfi. Þá var tekin stefna upp undir land, og kom báturinn upp rétt austan við Hlöðu, þegar sást til lands. Þaðan var tekin stefna á Kambanes við Stöðvarfjörð. Og þegar þang- að kom, var ekki dimmra en svo, að rofa sást í land. Þá var sjór orðinn svo þungur, að báturinn treysti sér ekki til að halda áfram til Fáskrúðsfjarðar, enda hafði hlaðizt á hann geysilegur klaki um nóttina. Hann hélt því inn á Stöðvarfjörð og kom þangað kl. 111/2 f. h. þann 29. febrúar. Þar lagðist báturinn við ból, sem var 5—6 faðma frá landi. Var það beint fram undan bryggj- unni, en við hana stóðu verzlunarhús Karls Guðmundssonar, kaupmanns. Þá var dimm- viðrið enn svo mikið, að ekki sást í húsin nema við og við. Og svo var brimið mikið, að enginn treysti sér út í bátinn fyrr .en kl. 4 um daginn. Ekki þarf að lýsa því, að á bátnum voru allir úrvinda af kulda og þreytu, bæði matar- og vatnslausir. Nú víkur sögunni til lands. Á Fáskrúðs- firði voru menn mjög hræddir um bátana, og sennilega hefur ekki öllum orðið svefn- samt þessa ofviðrisnótt. En samstundis og Garðar kom inn á Stöðvarfjörð, var sírnað til Fáskrúðsfjarðar, að Garðar væri kominn og þess látið getið, að fleiri menn mundu vera á honum en skipshöfnin. Höfðu allir mennirnir verið uppi, meðan bátnum var lagt við bólið, og sást þá úr landi, að óeðli- lega margir menn voru á bátnum. Vonuðu menn þá strax, að Garðari hefði auðnazt að bjarga skipshöfninni af Geysi, eins og líka síðar kom í Ijós. Þegar Garðar komst inn á Stöðvarfjörð, var hann allur yfirísaður og mjög illa út- lítandi. Og var mönnum hálfgerð ráðgáta, hvernig hann hefði komizt áfram. Bátverjar allir af Garðari voru fluttir í la.nd um kl. 4 áðurnefndan dag, þegar tókst að brjótast út í bátinn. Fengu þeir hinar al- úðlegustu viðtökur hjá Karli Guðmunds- syni, kaupmanni, og frú Petru Jónsdóttur, konu hans. Voru þeir þar um nóttina í góðu yfirlæti. Daginn eftir ætlaði Garðar heimleiðis. Þá var komið logn, en ennþá var haugabrim. En þegar búið var að setja vélina í gang og átti að fara að tengja skrúfuna við, þá kom í ljós, að annað skrúfublaðið var brotið, svo að útséð var um að báturinn kæmist nokk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.