Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 10
136 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. svarar mjer — ja, hver kann að vita? Kan- ske að jeg breyti þá ásetningi mínum og ör- lögin taki aðra stefnu — — — — — — — Jæja-nú! Jeg er þrisvar sinnum búin að kalla á hana — kalla nafn hennar »Mavis« út í sólskinið og vorblíðuna og enginn gegnir mjer nema söngþrösturinn (mavis á ensku), nafni hennar, sem sat kvakandi í furugrein, Mavis! — Hún kemur ekki — guð vill eklti lála hana vera boðbera sinn í dag. Hún þekkir ekki og veit ekkert um þessa hjartasorg mína, sem þyngri er og beiskari hverjum harmleik skáld- anna. Mjer þætti fróðlegt að vita, hvað hún hjeldi um mig, ef hún vissi, hvernig jeg er — Jeg ætla nú að hverfa aftur til þeirra tíma, er ástin gagntók mig — brennandi, ofsaleg, eilíf ást! Hvílíkur unaður, hvílík sæla, setn streymdi um hverja mína æð, hvílíkir draurnar, sem fyltu huga minn! Jeg sá Lúció — og mjer fanst sem voldugur engill varpaði dýrðlegum geislum i sál mína! Með honum var vinur hans og gerði fegurð hans enn tilkomume ri — þessi drembni, sjálfbyrgingslegi miljónara- kjáni Geoffrey Tempest — hann, sem keypti mig og er nú eiginmaður minn að iögum fyrir það kaup sitt — —- * Hjer hætli jeg lestrinum og leit upp. Augu hinnar framliðnu virtust stara jafnfast á mig og á sina eigin spegilmynd. Höfuðið var sigið lengra ofan á brjóstið og sjálft andlitið líktist nú talsvert greifafrú Elton, eftir að hún var orðin afmynduð í framan af slaginu. »Að hugsa sjer, áð jeg skyldi elska þetta !« sagði jeg og benti á líkið. »Slíkur heimskingi — slíkur dæmalaus heimskingi, eins og allir karlmenn, sem Ieggja sitt eigið líf og sína eig- in framtíð í sölurnar fyrir konulíkama og kvenfegurð. Ef nokkurt annað líf væri til — ef slík vera hefði sál, sem að einhverju leyti líktist þessari baneitruðu jörð, þá mundu sjálfir djöflarnir snúa baki við þessum andsfyggilega fjelaga.« Ljósin blöktu og líkið virtist brosa. Klukkan í hliðarherberginu sló, en ekki tók jeg eftir hvað margt. Jeg raðaði skrifuðu örkunum, sem jeg hjelt á, og hjelt áfram lestrinum. XXXVI. »Upp frá þeiiri stundu, að jeg leit Lúcíó Rímanez, gaf jeg mig ástinni og ástaþránni algerlega á vald,« hjelt Síbýl áfram þessari »líkræðu« sinni. »Jeg hafði heyrt föður minn geta um hann áður og vissi, að hann (faðir niinn) skuldaði honum peninga, þó skömm sje frá að segja. Sama kvöldið, sem við hittumst, sagði faðir minn við mig alveg hispurslaust, að nú byðist mjer tækifærið til þess að leita lukkunnar. »Gifstu annaðhvort Rímanez eða Tempest,* sagði hann, »hverjum þeirra, sem betur rennur á snærið. Prinsinn er vellríkur — en það er eitthvað leyndardómsfult við hann og enginn veit, hvaðan hann er runninn í raun rjettri — auk þess er hann frábitinn kvenfólki. Tempest á finim miljónir og virðist vera kærulaus glópaldi. Jeg held annars, að þjer sje best að dorga við hann.« Jeg svaraði þessu ekki og lofaði engu, en biátt komst jeg að því, að Lúcíó vildi ekki giftast og rjeð jeg af því, að hann vildi heldur vera elskhugi margra kveuna en »einnar konu eiginmaður.« En ást mín var jafnheit eftir sem áður og ásetti jeg mjer, að jeg skyldi að minsta kosti verða ein þeirra, er hlotnaðist sú sæla, að ná ástum hans. Svo giftist jeg Tempest og huggaði mig við það, að mjer yrði hægra um vik, eins og mörgum öðrum konum, þegar jeg á annað borð væri gift. Jeg vissi, að flestir karlmenn vilja daðra við gittar konur öðrum fiemur og hjelt, að Lúció mundi fallast á þessa ráðagerð mína, en sú von brást mjer og þaðan stafar öll mín ógæfa. Jeg skil ekki, hvers vegna elskhugi minn, sem jeg elska út af lífinu, smán- ar mig og hrindir mjer frá sjer með stakri fyrirlitningu. Petta er þó algengt, nú á dögum, að giftar konur eigi sjer elskhuga. Rithöfund- arnir ráða til þess og jeg hefi ekki að eins sjeð því mælt bót, heldur varið í löngum vís-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.