Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 30

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 30
156 NÝJAR KVOLDVÖKUR. hafa fundið sjera O’Toole að máli, en sá fundur hefði endað með skelfingu. Rví að hann kvaðst hafa lúbarið O’Toole, klætt hann úr hempunni og rifið hana í tætlur. Sjera O’Toole hafði kært þetta athæfi fyrir biskupi og þannig stæði málið nú. »En — sagði hann — þorparinn er nú horfinn úr þessum hluta landsins og, það sem verra er, tekið með sjer EIIu og móðir hennar og, það sem er allra verst, það veit enginn hvert þau hafa farið, en líklegt þykir, að þau sjeu öll koniin yfir til Frakklands.* Af þessu mátt þú sjá, að mál okkar er iila komið að einu leyti: Við höfum engin ráð til að ná í kerlinguna og krefja hana sagna, því að hver myndi vilja elta þau yfir sund- ið nú, þegar við e^gum f ófriði við Frakka. Að því er jeg veit, þá er öll okkar von á því einu bygð, að ná. í herrnanninn og konu hans, fóstruna, er send voru til Austur-Indía, án efa í þeirri von, að loftslagið og köldu- sóttin geri skjótan enda á æfi þeirra. Föður- bróður þ;nn er mesta bölvað þrælbein, og er þó enginn hans limur undanskilinn. Jeg fer hjeðan eftir þrjá daga og þú verður að hitta mig í Plymouth. Heilsaðu föður þín- um frá mjer og berðu virðingarfylst mína innilegustu hjartans kveðju til systur þinnar, sem jeg bið alla dýrlinga að vernda og varð- veita. Guð blessi hana eilítlega. Amen. Pinn einlægur. (Framh.) Terents O’Brian.* Hver er Helga? (Pýtt úr dönsku.) I. Frú Gerða reis með andfælum upp í rúm- inu og varð glaðvakandi um leið. Hún var þess alveg fullviss, að einhver hafði talað ekki ýkjalangt frá henni. Til þess að ganga úr skugga um, að svo hefði verið, beið hún hljóð og hlustaði, ef hún skyldi heyra það aftur. Voru þjófar komnir inn í dagstofuna eða jafnvel inn í sjálft svefnherbergið til hennar? Sú hugsun gerði liana nær lémagna af hræðslu. Hversu oft hafði hún ekki lesið um »svefn- herbergjaþjófa* í blöðunum, sem gátu verið til í alt, ef uppvísir yrðu að verknaði þeirra. Hún þorði ekki að rjetta út hendina til þess að kveikja rafljósið, og naumast að draga andann. Gæti hún einungis, vakið manninn sinn, áti þess að á því bæri. En jafnvel þótt hún segði ekki eitt eiuasta orð, heldur legði aðeins handlegginn yfir um hann, þá mundi hann eðlilega fara að tala, þegar hann vaknaði, og spyrja hana, hverju það gegndi, að hún væri að vekja hann. Og þá mundu þjófarnir vita, hvernig komið væri. Petta var óttalegt. Hún hafði svo mikinn hjartslátt, að hún áleit, að það mundi heyrast Iengra til. Hún vissi ekki, hversu lengi hún sat þannig og hlustaði, þegar hún varð annars áskynja. Senrtilega hafa það ekki verið nema ein eða tvær mínútur, þótt henni hafi vissulega fundist líða fleiri klukkustundir, áður en hún heyrði talað aftur. í þetta skiftið varð hún þó alls ekki hrædd. Pvert á móti. — Nú dró hún andann líkt og þungu fargi væri af henni ljett, og lagöi sig því næst út af aftur. Hún hafði sem sje heyrt, að það var eng-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.