Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 11

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 11
MÝJAR kvölövókor 13? indalegum ritgerðum í merkum tímaritum. Hvers vegna á þá að áfella mig eða telja fýsnir mínar brotlegar? Getur það verið saknæmt, ef almenns velsæmis er gætt? Jeg skil það ekki og það er næstum því eins og einhver guð væri til, sem menn ættu að forðast að slyggja, en nú halda vísindamennirnir því fram, að enginn guð sje til! — — — — — — — Jeg varð afskaplega hrædd rjett í þessu. Mjer heyrðist Lúcíó vera að kalla á mig. Jeg gekk um öll herbergin og gætti að og jeg Ijet dyrnar standa opnar og hlustaði, en varð einkis vör. Jeg hefi skipað þjónunum að ónáða mig ekki fyr en jeg hringdi bjöllunni — en það geri jeg nú víst ekki framar! En eftir á að hyggja, þá er það annars undarlegt, að jeg skuli aldrei hafa komist að því, hver Lúcíó er í raun og veru. Hann segist vera prins og það er hann víst áreiðanlega — og eru þó prinsatnir nú á dögum svo luhbalegir og Iítil- sigldir, að hann virðisl hátt hafinn yfir slfka kumpána. Frá hvaða kóngsríki er hann og hverrar þjóðar? Hatin svarar því ávalt út í hðtt, ef hann er spurður. — — — — — — Hjer nem jeg staðar og lít í spegilinn. En hvað jeg er faileg! Jeg dáist að hinum djúpa Ijóma augtia minna og dökkum, silkimjúkum augnahárunum, að roðanum í kinnum mínum og vörum, að ávalri hökunni og skarðinu í hana, að fagursköpuðum hálsinum og fann- hvítri hnakkagrófinni með síðu, gljáandi hár- inu. Alt var þetta mjer gefið til þess að heilla karlmennina og lokka þá, en ástvinur minn, sem jeg elska af öllu mínu hjarfa — hann lít- ur ekki við fegurð minni og hrindir mjer frá sjer með fyrirlitningu og það tekur mig sárast. Jeg hefi ktijekropið honum, tilbeðið hann, ákallað hann — en alt til einkis. Þess vegna hlýt jeg að deyja. Rað var aðeins eitt, sem hann sagði, er gefur mjer einhverjar vonir, enda þótt svipur hans væri háðslegur og jafn- vel æðislegur, er hann sagði þ3Ö. »Vertu þol- inmóð!« hvíslaði hann. »Við hittumst áður langt líður.< Við hvað átti hann ? Hvernig ættum við að hittast, þegar dauðinn lokar lífsins hliðum og sjálf ástin kemut- um seinan! — — — — — — — — — Jeg hefi opnað gimsteinaskrínið milt og tekið þaðan hinn drepandi vökva, sem var fal- inn í því — það er eitur, sem einn Iæknirinn, ar stundaði móður mína upp á síðkastið, fjekk mjer í hendur. »Geymið það vandlega,* sagði hann, »og gætið þess vel, að það er einungis til útvortis notkunar. I þessu glasi er nóg til þess að bana einni manneskju, ef það er tekið óvart inn.« Jeg horfði undrandi á það. f>að er I tlaust og ekki einu sinni teskeið — og samt flytur það mig í hin eilífu myrkur og byrgir mjer að eilífu unaðssemdir þessa heims. Svona lítil ögn og svona stórkostleg verkun! Jeg hefi spent brúðargjöf Lúcíós um mig miðja — hina skínandi gimsteinaslöngu, er hringast utan um mig eins og faðmlag hans. Æ, ef jeg gæti vaggað mjer í slíkan sæludraum! — Jeg skelf, en hvorki af kulda nje angist. F*að eru að eins taugarnar, sern eru svona úr lagi færð- ar — holdið og blóðið, sem hopar ósjálfrátt undan dauðanum. — En hvað sólin skín skært inn um gluggann! Hún hefir horft á marga skepnuna kveljast og deyja og ekkert ský skygt á geisladýrð hennar sem merki með- aumkunar. Ef guð er til, þá hugsa jeg mjer að hann sje líkur sólinni — skínandi fagur, ótilkvæmilegur, ynd^slegur — og miskunar- laus! — — — — — — — — — — — Jeg held, að jeg hati þá menn mest allra manna, sem kalla sig skáld. Jeg hefi elskað þá og trúað þeim, en nú veit jeg, að þeir vefa tóman lygavef, að þeir byggja skýjaborg- ir, þar sem engin manneskja getur haldist við og ekkert sundurkramið hjarta fengið frið og hvíld. Astin er aðalyrkisefni þeirra og annað tveggja hefja þeir hana upp til skýjanna eða traðka hana niður í saurinn. Reir hafa enga hugmynd um þá ást, sem við konur þráum heitast. Reir yrkja aðeins um dýrslegar ástríð- ur eða siðferðislegar fjarstæður og jeg gæti hugsað, að mörg vesalings konan, sem glatað hefir sálu sinni vegna sviklnna ástardrauma, 18

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.