Barnabók Unga Íslands - 01.01.1906, Blaðsíða 43
IJNGA ÍSLANDS.
43
»Hversu víða akra mundir þú eiga vilja?«
Hann svarar: »Þat vildi ek, at nesit væri
þetta allt sáit hvert sumar, er út gengur í
vatnit«. En þar stóðu 10 hæir. Konungur-
inn svarar: »Mikil korn mætti þar á standa«.
Þá spurði konungur Hálfdán, livat hann vildi
flest eiga. »Kýr«, segir hann. Konungur
spurði, »Hversu margar vildir þú kýr eiga?«
Hálfdán sagði: »Þá er þær gengi vil vatns,
þá skyldu þær standa sem þykkast um-
hverfis vatnit«. Konungurinn svarar: »Bú
stór vilit þit eiga; þat er glíkt8) feður ykkr-
um«. Þá spyr konungur Harald: »Hvat
vildir þú flest eiga?« Hann svarar; »Hús-
karla«. Konungur mælti: »Hve marga viltu
þá eiga?« »Þat vildi ek, at þeir æti at einu
máli kýr Hálfdánar bróður míns«. Konung-
ur hló at og mælti til Ástu: »Hér munt þú
konung upp fæða, móðir!« Eigi er þá getit
fleiri orða þeirra.
1) urðu liræddir. 2) skeggið. 3) líkt. *) Síðar Noregs-
konungur, kallaður Haraldur Ilarðráði.