Barnabók Unga Íslands - 01.01.1906, Page 45
VNGA ÍSLANDS.
45
þeim hamingju og fullsælu fjár með lagkænsku
sinni, vjelfimi og ötulleik. Blótslalla lians og
líkneskjur reistu menn einkum á strætum og
torgum og við fordyriglímuskólanna. Líkneskju-
smiðir liafa jafnan myndað Hermes í ungs
manns líki, heldur háan og grannvaxinn, en
þó vörpulegan. Hann hafði ferðahatt á liöfði
koUlágan og barðabreiðan; settu menn síðar
vængi á hattinn og slíkt hið sama á sóla
guðsins, er hann hatt undir iljar sjer í liverl
skipti sem hann átti að i'ara sendiför; báru
þeir hann sem vindur bljesi yíir láð
og lög. í hendi sjer bar liann töfrastaf, gull-
sprota þríangaðan, sem hamingja fylgir og
auðsæld.
Fám stundum eptir að móðir hans hafði
alið hann í hellinum, stalst hann burt úr
reifunum og læddist út; fyrir utan hellisdyrn-
ar fann hann skjaldböku og skar innan úr
henni og bjó til hörpu úr skelinni; þaðan
brá hann sjer til Píeríu þangað sem Appollon
sal yfir hjörðum sinum; stal hann þar fimm-
tíu nautum og kom þeim svo kænlega undan
að ómögulegl var að rekja spor þeirra.
Flýtti hann sjer nú heim aptur til Kyllene-
fjalls í hellinn og lagðist í vöggu sína. Karl
einn gamall hafði sjeð til ferða hans og
sagði Appolloni. Heimtaði hann aftur naut-