Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Síða 20
Sjómannadagurinri
HátíSahöld Sjómannadagsins í
Reykjavík 1959 fóru fram sunnudag-
inn 7. júní. Veður var þurrt, en all-
hvasst var fram í eftirmiðdag, en þá
lygndi um stund, en hvessti svo aft-
ur, er síðustu kappróðrarsveitirnar
voru að keppa. Skip í höfninni voru
fánum skreytt og víða blöktu fánar
við hún í bænum. Kl. 10.00 hófst há-
tíðarmessa í Hrafnistu. Prestur var
séra Bjarni Jónsson vígslubiskup, en
organleikari Gunnar Sigurgeirsson.
Kl. 13.15 var safnazt saman við Iðnó
og farin stutt hópganga undir félags-
fánanum, og Lúðrasveit Reykjavíkur
í broddi fylkingar, um miðbæinn og
staðnæmzt á Austurvelli, þar sem
fánaborgin tók sér stöðu. Kl. 14.00
hófust svo hin venjulegu hátíðarhöld
af svölum Alþingishússins
Biskup Islands, herra Asmundur
Guðmundsson, minntist drukknaðra
sjómanna, en Guðmundur Jónsson,
óperusöngvari, söng einsöng. Sjávar-
útvegsmálaráðherra, Emil Jónsson,
flutti ávarp af hálfu ríkisstjómar-
innar. Sigurður Egilsson, fram-
kvæmdastjóri, af hálfu útgerðar-
manna og Guðmundur Pétursson,
vélstjóri, af hálfu sjómanna.
Form. Sjómannadagsráðs, Henry
Hálfdansson, afhenti eftirtöldum
mönnum heiðursmerki Sjómanna-
dagsins: Sigurði Gunnlaugssyni, Jó-
hanni Torfa Steinssyni, Jóni Jó-
hannssyni og Guðmundi H. Guð-
mundssyni. I Hafnarfirði voru eftir-
taldir menn sæmdir heiðursmerki
Sjómannadagsins: Jón Eyleifsson,
Guðmundur Þorbjamarson og Ey-
þór Þórðarson.
Afreksbjörgunarverðlaun Sjó-
mannadagsins voru veitt eftirtöldum
mönnum: Sigurði Kristjánssyni, 2
stýrimanni á bv. Norðlendingi og
Magnúsi Lórenzsyni, vélstjóra á bv.
Kaldbak, fyrir frækilegar bjarganir
skipsfélaga sinna úti í rúmsjó við
4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ