Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Blaðsíða 21
í Reykjovík 1959
erfið skilyrði. Einnig var Færey-
ingnum Kai Johannesen veitt viður-
kenningarverðlaun fyrir frækilega
björgunartilraun úti í rúmsjó, einnig
við erfið skilyrði.
I eftirmiðdag hófust svo kappróðr-
ar í Reykjavíkurhöfn. Þátttakendur
voru 5 skipshafnir og 2 kvennasveit-
ir, en það voru starfsstúlkur Frysti-
hússins Isbjarnarins og Fiskiðjuvers-
ins. Sigurvegari varð skipshöfn bv.
Jóns forseta og hlaut að verðlaunum
Lárviðarsveig Sjómannadagsins og
Fiskimann Morgunblaðsins, en róðr-
arsveit ms. Hafþórs hlaut June-
Munktell-bikarinn. Tími róðrarsveit-
anna var þessi: Bv. Jón forseti 2 m.
50.2 sek. Bv. Marz 2 m. 51.2 sek.
Ms. Hafþór 2 m. 53.9 sek. Sveit Fisk-
iðjuversins 3 m. 01.1 sek. Sveit Is-
bjarnarins 3 m. 01.4 sek. Bv. Geir,
A-sveit, 3 m. 02.0 sek. Bv. Geir, B-
sveit, 3 m. 06.4 sek. Ms. Dröfn, Hafn-
arfirði, 3 m. 06.6 sek. Mb. Þórður
Ólafsson, Ólafsvík, 3 m. 15.5 sek. Þá
fór fram reipdráttur milli kvenna-
sveita úr Hraðfrystistöðinni og Fisk-
iðjuverinu. Sveit Fiskiðjuversins
vann. Vegna þátttökuleysis féll
stakka- og björgunarsund niður.
Tekjur af blaða- og merkjasölu
og kvöldskemmtunar Sjómannadags-
ins urðu svipaðar og undanfarin ár.
Sjómannakonur höfðu kaffiveit-
ingar í Sjálfstæðishúsinu og gáfu
þær í ágóða um 20 þúsund krónur
til jólaglaðnings fyrir vistfólk í
Hrafnistu.
Utvarpað var frá hátíðarhöldum
dagsins og um kvöldið var Sjó-
mannakvöldvaka í Ríkisútvarpinu.
Öllu var útvarpað á stuttbylgju og
langbylgju, svo að sjómenn á fjar-
lægum höfum fengju tækifæri til að
hlusta á dagskrána.
Sjómannadagurinn þakkar öllum
þeim mörgu, sem nú og áður hafa
lagt deginum lið sitt.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 5