Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Qupperneq 33

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Qupperneq 33
handa við skurðverkið. Með sama vinnufyrirkomulagi og Frakkar höfðu haft, mátti ganga frá því vísu, að 80.000 menn myndu láta lífið við vinnuna. Bandaríkjamenn breyttu því um starfsaðferðir, og hófu stór- kostlegar aðgerðir til útrýmingar á hættum þeim, er þarna voru. Fyrst þurfti að vinna bug á mosk- ítóflugunum, sem milljónum saman klöktu út eggjum sínum í mýrar- flákunum. Steinolíu var hellt yfir mýrarflákana og myndaði himnu yf- ir vatnsborðið, svo að moskítólirf- urnar komust ekki upp til að anda. Síðan voru svæðin þurrkuð. Gömul smáþorp voru rifin til grunna, og önnur ný reist. Komið var upp vatns- veitum og 60 nýjum, fullkomnum sjúkrahúsum. Fólk, sem þjáðist af smitandi sjúkdómum, svo sem holds- veiki, var einangrað. Þegar 20 milljónum dollara hafði verið eytt til þessara þörfu heilbrigð- isráðstafana, var stjórnarmönnum í Washington tilkynnt, að hægt væri að byrja vinnu við skurðinn. Verkið gekk samkvæmt áætlun, fjöldi gufuknúinna lyftitækja, sem lyfti mörgum tonnum, starfaði þarna. 167 járnbrautarlestir þutu fram og aftur og fluttu burt jarðveginn. Við sprengingar var að meðaltali notað 1 tonn á klukkustund af dynamiti. 30000—50000 menn unnu við þetta tröllaukna verk. Seinni hluta árs 1914 rann upp langþráð stund. Mannvirkinu var lokið. Wilson forseti Bandaríkjanna lýsti opnun skurðarins. Veröldin var nú einni siglingaleið ríkari. Umferð um skurðinn fer sívax- andi. Frá júní 1955 til jafnlengdar 1956 voru 8475 skipaferðir um skurð- inn og brúttótekjur námu 37.45 milljónum dollara. Alls hafa farið um skurðinn 260.000 skip, og flutn- ingarnir nema brátt 1 milljarð tonna. Stór hluti teknanna fer beint til starf- semi og viðhalds við skurðinn. Breyt- ingaráðagerðirnar, sem Bandaríkja- stjórn hefur á prjónunum, verður að miklu leyti kostað með beinu framlagi frá Bandaríkjunum. Aætlanir, sem National Rivers and Harbours Congress hafa unnið að, gera ráð fyrir, að fyrirhugaðar breyt- ingar í marflatt yfirborð muni kosta 4879 milljarða dollara. I skýrslu þessa fyrirtækis er bent á, að miklu lengri tími fari í að gera við skemmd- an skipastiga heldur en menn al- mennt geri sér grein fyrir. Ef skarð kæmi í Gatun-stífluna myndi Gatun- vatnið, sem er í 26 metra hæð yfir sjávarflöt, tæmast, og þar með væru skipastigarnir óvirkir. Eftir viðgerð á stíflunni myndi það taka 1 til 2 ár að fá nægjanlegt vatn aftur, þegar miðað er við normalt regnár á þess- um stað. National Rivers and Harbours Congress segja: „Verði skurðinum breytt í marflatt yfirborð, verða ekki teljandi truflanir á starfrækslu skurðarins, jafnvel þótt hann verði fyrir kjarnorkusprengjum.“ Samveldisþing Bandaríkjanna tel- ur góða starfrækslu Panamaskurð- arins mjög mikið öryggismál fyrir bandarísku þjóðina og leggur til, að skurðinum verði breytt í „nýtísku“ horf hið allra fyrsta. (Tekið úr Burmeisterblaðinu). Orn Steinsson. Ekki hissa á tíðinni. — I gamla daga, sagði gamall sjómaður, — gat hvalveiðileiðangur staðið yfir í 5—7 ár — jafnvel 10 ár. — Það skeði eitt sinn, að stýrimaður á skipi, sem var að leggja af stað í slíkan leiðangur kom til skipstjórans og sagði: — Konan þín stendur á bryggjunni og er að gráta augun úr höfðinu á sér. — Hvað er að henni? spurði skipstjór- inn. — Hún segir að þú hafir gleymt að kyssa sig, svaraði stýrimaður. — Jæja, sagði skipstjóri, — þetta er nú ekki nema tveggja ára túr. Skynsemi. Hann var ekki einn af þessum heimakæru heimilisfeðrum. Hvert kvöld var eitt eða annað mót eða fundur, sem hann þurfti að mæta á. Konan spurði: — Hvert ertu að fara? — Skynsöm kona spyr aldrei mann sinn hvert hann fari. — Skynsamur maður lætur konu sína vita, hvert hann ætlar. — Skynsamur maður á enga konu. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 1 7
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.