Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Blaðsíða 53
Skyndimynd af New York. Auða svæðis fremst á myndinni er Battery Park, og litla hringlaga byggingin við ströndina eru eftirstöðv-
ar af „Castle Garden", þar sem innflytjendur streymdu í gegn síðari hluta 19. aldar. Og á þessum stað var hin upprunalega New
Amsterdam reist.
möguleg, og þess vegna er eini
stækkunarmöguleikinn upp á við.
En þessi uppvöxtur borgarinnar er
einmitt eitt af sérkennum hennar og
hefur gert hana að sínu leyti eins
víðfræga eins og Frelsisgyðjan og
bygging Sameinuðu þjóðanna.
Hin raunverulega New York er
miklu stærri heldur en landssvæði
borgarinnar er talið. Úthverfin, sem
hggja utan að aðalborginni, eins og
New Jersey vestan við Hudson Riv-
er eru í beinum viðskiptatengslum
við aðalborgina. Og ef allt það svæði,
sem þannig er í beinum tengslum
við borgina, væri talið til hennar,
er að mati SÞ íbúatalan um 15 millj.
manna, og þar með gæti hún raun-
verulega talizt langsamlega stærsta
borg veraldarinnar.
Veðurfar er talið vera milt og
stöðugt. En eins og allir New York-
búar myndu skilgreina það, er sum-
arið langt og heitt og vetur kaldur
og langur. Breytileiki hitastigs er
ekki óþekkt að geta leikið milli 90°
og 0° Fahrenheit. En nokkuð algengt
er, að hitabreytingin geti orðið um
30° á sama degi. En þegar menn fara
að venjast þessum skörpu stigbreyt-
ingum veðursins, er veðurfarið
skemmtilegt og auðvelt að lifa við.
Höfnin í New York, sem borgin
byggir að verulegu leyti afkomu
sína á, er sennilega sú bezta í heimi.
Hafnarsvæðið allt er um 650 mílur
beggja megin við Upper Bay, East
River, North (Hudson) River og
Newark Bay. Með nægu dýpi fyrir
allra stærstu hafskip. Með allri
strandlengjunni eru hafnargarðar,
þar sem að meðaltali árlega leggjast
um 13,000 skip í eigu 170 skipafé-
laga. Flutningur þeirra nemur að
meðaltali um 140 millj. tonn árlega,
að meðtalinni innanhafnarfragt, og
rúmlega 35 millj. tonna af útlendum
uppruna, sem er um það bil 40% af
innflutningi Bandaríkjanna frá öðr-
um löndum. Það er traust umsetn-
ing, er gefur um 500,000 manns dag-
legt viðurværi.
Höfnin er íslaus, en um háveturinn
kemur fyrir rekís. Hann er mjög
óverulegur og engar sérstakar ráð-
stafanir þarf að gera til að brjóta ís-
inn. Flóðmismunur er um 4,6 fet, og
meðalstraumhraði í ánum er innan
við 3 mílur. Framburður er smá-
vægilegur, og þá helzt í North (Hud-
son) River, en honum er auðveld-
lega haldið í skefjum með stórvirk-
um botnsköfum.
Hin sérstæða sjálfsstjórn hafnar-
innar og framkvæmdaratriði eru
undir aðalstjórn Port of New York
Authority. Það fyrirkomulag var
tekið í framkvæmd með samningi
milli New York og New Jersey og
falið framkvæmdavald. Frá upphafi
þessarar umboðsstjórnar fyrir 39 ár-
um, hefur hún gert miklar ráðstaf-
anir til umbóta á öllu hafnarsvæð-
inu. Því að auk endurbóta á hafnar-
görðum og vöruskemmum, hafa
verið byggðar brýr, flugvellir og að-
setur fyrir ýmis konar löndunar- og
flutningatæki.
Og það er langt frá því, að ný-
byggingum sé nærri lokið. Fram-
undan er nýtt allsherjar endurskipu-
lagsáform í hafnarframkvæmdum,
sem nú þegar er farið að bera góðan
árangur. T. d. hafa nokkrir af elztu
hafnargörðunum í Brooklyn verið
brotnir niður og hinir splunkunýju
hafnargarðar The Port Authority,
skammt suður af Brooklyn Bridge,
voru fyrir stuttu síðan teknir í notk-
un.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37