Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Síða 63

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Síða 63
Allsnægtir og örbirgð Á þurrlendinu er maðurinn í sér- flokki, að því er snertir tortímingu á öðru en lífi, en í sjónum hittir hann þá, sem eru honum fremri. Lífsbar- áttan hefur staðið fjórum eða fimm sinnum lengur í undirdjúpunum, og þar birtist enn meiri slægð og hygg- indi. Þótt hafið sé víða kyrrlátt á yfirborðinu, er ákaft barizt í undir- djúpunum og engin grið gefin. Stærð fiska virðist óviðkomandi stærðinni á eftirlætisæti þeirra. Stærsta skepna í heimi, bláhvelið, nærist á litlum rækjum, sem verða aðeins tveir þumlungar fullvaxnar. Þar sem bláhvelið getur orðið 100 smálestir eða meira, etur það ótrú- legt rækjumagn. En búrhvelin, sem eru heldur minni — þau verða um 70 fet á lengd — sækjast eftir stærri hráð, sérstaklega risavöxnum kol- krabba, sem geta orðið næstum eins stórir, allt að 50 fetum, þegar bæði skrokkur og armar eru mældir. Búr- hvelið er auk þess mikill kafari, því að það verður að fara ofan í 1500 feta dýpi eða meira til að afla sér ætis. Nærri yfirborði sjávar, þar sem svifið verður til, fá öll sjávardýr nóg og reglulega að eta. Fisktorfur gleypa í sig svifið eða önnur dýr, sem lagt hafa sér svifið til munns, og eru næstum eins og stórgripir á beit. Þeir sjávarbúar, sem eta svif, hafa eins konar síu í munni sér, svo að hægt sé að losna við sjóinn jafnharð- an, og þeir geta fengið fylli sína með því einu að láta sig líða áfram með opinn munn. Þar sem svo er ástatt, kemur maðurinn til sögunnar með veiðitæki sín — hann vill njóta endanlegrar uppskeru. Þar sem dýp- ið er of mikið fyrir plöntulíf, er minna um æti, og má segja að þar skiptist á allsnægtir og örbirgð. Til eru eins konar eyðimerkur í hafinu, þar sem nær ekkert líf þrífst. Geta þær alveg eins verið í hlýjum sjó og köldum, því að aðalspurning- in er, hvort skilyrði séu heppileg fyrir plöntulíf. Þau skilyrði eru ekki fyrir hendi úti á reginhafi, nema þar sem straumar leika um. Ein undantekning er þá Sargasso- hafið, þar sem kyrr og sólvermdur sjór er fullur af sargassiun-þangi, sem er mestmegnis þörungategund, er eykur kyn sitt án afláts en fær auk þess sífellt árlegan liðsauka með Golfstraumnum frá ströndum nýja heimsins. Með þessu nýkomna þangi berast ýmis smádýr, sem hafast síðan við í Sargasso-hafinu. Meðal þeirra eru seiði fiska, er hrygna langt frá landi og verða að aðlagast nýju um- hverfi, gerólíku þeim sendna og grýtta botni, sem forfeður þeirra voru vanir. Þá berast þangað önnur lítil dýr, sem venjulega festa sig við kletta eða þang eða lifa á botninum, rækjur og ormar og kvikindi, sem líkjast helzt köngulóm. Um aldirnar hafa sum þeirra breytzt í útliti, svo að þeim veitist auðveldara að afla sér fæðu. Þar má nefna Sargasso- sæsnigilinn, en forfeður hans skriðu eftir botninum í leit að æti. Sar- gasso-afbrigðið hefur lært að brölta yfir þangflækjur — það er ósjálf- bjarga og sekkur til botns, ef það dettur af þeim — og hefur breytt um lit, svo að það skeri sig ekki úr um- hverfinu. Einhver gráðugasti fiskur, sem til er og vísindamenn kalla pterophryne, hefur búið sér til dul- argervi, svo að ógerningur er að greina hann frá sargassum-þanginu. Jafnvel dýr, sem hafa ekkert melt- ingarkerfi, geta keppt um næringuna í sjónum. Á sumum ströndum Ev- rópulanda er til lítill, flatvaxinn, grænn ormur, sem lifir góðu lífi á að veita þörungunum heimkynni í líkama sínum. Ormur þessi nærist á fæðu, sem gesturinn framleiðir, en hlutverk húsráðanda er að skríða upp úr sandinum á fjöru, svo að þörungurinn fái að njóta nauðsyn- legs sólarljóss til matvælaframleiðslu um nokkurra stunda skeið, en síðan leitar hann aftur til hælis fyrir báða með því að grafa sig í sand þegar að fellur. Þróunin hefur skapað einkenni- legustu tæki til að hjálpa fiskum við að leita sér ætis í sjónum. Eitt af þeim elztu er það, sem nútímamenn gætu hugsað sér að finna upp sjálfir, þ. e. aðferð sú, sem rafmagnsfiskar beita til að mynda nægan straum til að finna og rota síðan bráð sína. Rafmagnsálar eru færastir í þessu, og geta þeir myndað næga spennu til að lama hest, hvað þá fisk. Auk þess virðast þeir vera búnir ein- hverjum þeim tækjum, sem maður- inn hefur ekki áttað sig á, og gera þeim kleift að finna bráð sína, þótt hún sé í 20 feta fjarlægð. Marglittutegund sú, sem kölluð er á ensku „portúgalskt herskip" hef- ur myndað annað veiðitæki, sem gerir hana mjög óvinsæla á bað- ströndum. I rauninni er „herskipið“ ekki einstakt dýr, heldur samyrkju- bú ýmissa dýrategunda, er hver gegnir sínu hlutverki í þágu sam- eiginlegrar lífsbaráttu, og er skipu- lagið eins fullkomið og í býflugna- búi og betra en á flestum samyrkju- búum manna. Aðalmeðlimir „portú- galska herskipsins“ mynda fálmar- ana eða hafa á hendi hlutverk mag- ans. Félagsbú þetta er eins og hrúga af ljósgrænu eða bláu hlaupi, sem flýtur á yfirborði sjávar, haldið uppi af lofti, en fálmararnir hanga niður í sjóinn eins og snærisspottar og verða stundum 30 fet á lengd. Fálm- arar þessir verka sem eitur á öll dýr, sem snerta þá, nema eitt (enda þótt þau bíði ekki þegar bana), og þann- ig veita þeir aðstoð við að draga björg í bú, því að þessi lífsveruhópur lifir á fiski, sem fálmararnir lama. Þeir meðlimir félagsbúsins, sem mynda magann, hafa á hendi dreif- ingu fæðunnar. Starfa þeir eins og vel þjálfaður verkamannahópur og vinna í sameiningu við að ,,gleypa“ bráðina. Eina dýrið, sem eitrið vinn- ur ekki á, er lítill sníkjufiskur, sem vísindin kalla nomeus granovii, og leitar hann meira að segja hælis inn- an um fálmarana, þar sem hann lifir góðu lífi. Kolkrabbinn notar arma sína með allt öðrum hætti, því að hann seilist eftir fæðunni í stað þess að bíða þess, að hún berist til hans af tilviljun. Á hverjum armi er fjöldi sogskála, sem geta sogið sig fastar við hvað sem er, en þó fyrst og fremst eitthvað ætilegt, en þær geta líka sleppt taki sínu, hvenær sem þurfa þykir. Með örmunum dregur kolkrabbinn fæð- una að munni sér, en hann er trjóna, SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 47

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.