Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Síða 64

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Síða 64
sem getur brotið harða krabbaskel. Er það haft fyrir satt, að kolkrabbinn sækist ekki eftir mannakjöti og ráð- ist ekki á kafara. En hann er engan veginn ósjálfbjarga, og risakolkrabb- ar skilja stundum merki eftir á haus- um hvala, enda þótt hvalirnir hafi haft sigur í baráttunni við þá í und- irdjúpunum. Á miklu dýpi, þar sem oft er langt á milli máltíða, hegða sum dýr sér eftir aðstæðum og auðsýna jafnvel bókstaflegan teygjanleika að því leyti. Sérstök krossfiskategund get- ur til dæmis teygt svo úr sér, að hún getur gleypt fisk, sem er nokkrum sinnum stærri en hún sjálf, en síðan tekur meltingin langan tíma. Kletta- karfi, sem er eins konar sjóbirting- ur og getur orðið fimm eða sex sinn- um þyngri en maðurinn, er mjög fallegur á litinn, en kjaftstærðin eyðileggur fegurðina að öðru leyti. Stundum virðist þessi fiskur ekki vera neitt annað en kjafturinn, af því að hann getur opnað hann meira en nemur ummáli skrokksins. Kletta- karfarnir liggja í leyni við kletta eða rif eða skipsflök og geta aflað sér talsverðrar bráðar með því einu að opna kjaftinn. James Dugan, sem tók þátt í Calypso-haffræðileiðangrin- um, hefur skýrt frá sannri sögu um klettakarfa, sem gleypti mann. Mað- urinn komst þó undan með því að skríða út um tálknopin. En vilji menn kynnast græðgi sem segir sex, verða þeir að heimsækja þau höf, þar sem æti er mjög mikið. Verður þá að kanna kaldan sjó nærri yfirborðinu, þar sem bæði plöntur og dýr geta þrifizt. Þar er að finna matarforða fyrir þær gríðarlegu torfur af þorski og síld og laxi, sem menn kannast við, en auk þess fá milljónir sela og hvala á norður- og suðurhveli jarðar þar æti sitt, að ó- gleymdum hnísuvöðum og fuglageri. Einu staðirnir í hitabeltinu, þar sem gnótt átu er að finna, er í straumum frá kaldari höfum, einkum Hum- boldt-straumnum undan vestur- strönd Afríku. Humboldt-straumurinn hefur í fórum sínum þvílíka átugnótt, að um óteljandi aldir hefur eithvert mesta fuglager, sem maðurinn hefur nokkru sinn heyrt nefnt, getað feng- ið þar nægju sína og skilað bezta dýraáburði, sem maðurinn þekkir, á varpstöðvar sínar. Menn sóttu áburð þennan til Gúanó-eyjanna svokölluðu undan ströndum Perú, og hann var notaður í svo ríkum mæli um langt árabil, að landbún- aðurinn í miklum hluta Evrópu og Ameríku gat ekki án hans verið, þar til menn lærðu að búa til áburð í verksmiðjum. Gnótt átu er við jaðra allra haf- strauma, þar sem þeir mæta öðrum straumi. Rótið sem myndast við átök straumanna, þvingar kaldan sjó upp úr undirdjúpunum, því að jafnvel þar sem hitar eru mestir, er sjávar- hiti við frostmark á 10 þúsund feta dýpi. Þegar nóg er fyrir hendi af steinefnum og sólar nýtur að auki, táknar það upphaf allsnægta í sjón- um. Þessi frásögn og Fögur dýr og firna ljót eru báðar úr bók Peter Freuchens: Heims- höfin sjö. Þegar franska leikkonan Adrienne Lecouvreur dó, árið 1730, neituðu prestarnir fyrst í stað að veita henni kirkjulega greftrun, þar eð hún hafði ekki viljað iðrast „hinnar hneykslan- legu atvinnu sinnar“, eins og þótti bezt sæma leiklistarfólki á þeim tím- um. David Hume þótti sérstaklega ó- félegur maður í sjón að sjá og vissi það sjálfur. Einu sinni var hann á ferð með skipi yfir Forthfjörðinn. Þá skall á óveður og þótti hætta á ferð- um. Kona nokkur bar sig þó vel og spurði Hume: — Hvort okkar haldið þér að há- karlarnir éti, ef við lendum í sjóinn? — Þeir, sem hafa góða matarlyst, éta mig. En þeir matvöndu éta yður, svaraði Hume. Frúin: Nú gef ég yður 25 aura. En þér megið ekki drekka yður fullan fyrir þá. Betlarinn: Nei, ég kaupi strax dýr- asta sæti í leikhúsinu. Gestur í samkvæmi: Hver er þessi sauðarlegi maður, sem situr þama? Kona: Það er Davíð prófessor. Vit- ið þér hver ég er? Gesturinn: Nei. Konan: Eg er dóttir hans. FulltrúaráS Sjómannadagsins Skipstjórafélagið Aldan: Guðbjartur Ólafsson. Steindór Arnason. Vélstjórafélag íslands: Tómas Guðjónsson. Júlíus Kr. Ólafsson. Sjómannafélag Reykjavíkur: Asgeir Torfason. Karl Karlsson. Pétur Sigurðsson. Hilmar Jónsson. Hjalti Gunnlaugsson. Ólafur Sigurðsson. Stýrimannafélag íslands: Theódór Gíslason. Grímur Þorkelsson. Skipstjórafélagið Kári, Hafnarfirði: Isleifur Guðmundsson. Agúst Hjörleifsson. Skipstjórafélagið Ægir: Magnús Runólfsson. Jóhann Magnússon. Skipstjórafélag Islands: Þorvarður Björnsson. Jón Eiríksson. Félag íslenzkra loftskeytamanna: Henrý Hálfdánsson. Tómas Sigvaldason. Sjómannafélag Hafnarfjarðar: Kristján Jónsson. Einar Jónsson. Framleiðsludeild S. M. F. Guðmundur H. Jónsson. Gestur Benediktsson. Matreiðsludeild S. M. F.: Elís V. Arnason. Böðvar Steinþórsson. Matsveinafélag S. S. í.: Sigurður Magnússon. Magnús Guðmundsson. Mótorvélstjórafélag Islands: Bjarni Bjarnason. Sveinn Jónsson. Bátafélagið Björg: Gunnar Friðriksson. Bjarni Kjartansson. Stjórn Sjómannadagsins 1960: Formaður: Henrý Hálfdánsson. Gjaldkeri: Guðmundur H. Oddsson. Ritari: Tómas Guðjónsson. Meðstjórnendur: Garðar Jónsson. Gunnar Friðriksson. 48 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.