Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 50

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 50
var skipstjóri Bjarni Ingimarsson. Þar var ég í tvö ár og hafði þá efnast svo að ég ákvað að ijúka rafmagnsdeildar- náminu við Vélskólann — en úr því gat ekki orðið þar sem aðalkennarinn fékkst ekki! Fyrst þessum áfanga varð ekki náð að sinni hlaut ég að fara á sjóinn aftur og hafði ég í huga að fara á togara. En það dróst af einhverjum orsökum og sótti ég um hjá Eimskip. Ekki var hlaupið að því að fá pláss hjá þeim, en þó kom að því að ég fékk pláss á Dettifossi sem 4. vélstjóri. Það var hinn 18. október 1942 sem látið var úr höfn og kom ég heim úr fyrsta túrnum - en siglt var til Ameríku - þann 12. desember sama ár. Fleiri urðu siglingarnar ekki í bili, en 1. vélstjórinn bauð mér að koma aftur um vorið þegar ég hefði lokið skólanum. Þetta gekk eftir: - ég lauk náminu og var ráðinn á Dettifoss að nýju vorið 1943 og var á honum uns hann var skotinn niður." 31 dags sigling frá Reykjavík til New York „Svo ég segi þér nokkuð frá siglingum mínum á Dettifossi á stríðsárunum, þá var þeim í fyrstu svo hagað að við sigldum beint til Bandaríkjanna héðan frá Islandi - ekki þó einskipa, heldur í skipalestum. Flest voru skipin sem von var erlend og komu úr Hvalfirðinum. Þó man ég eftir finnsku skipi sem Eimskip var með á leigu og hét Jammassy og var mjög oft samflota okkur. Vitaskuld fylgdu tundurspillar ætíð hverri skipalest. Skipstjóra mun hafa verið fengið umslag þegar látið var úr höfn og mátti ekki opna það fyrr en út á haf var komið. í umslaginu stóð hvar skipalestinni var ætlað að vera á hádegi hvern dag, svo að ef skip varð viðskila við lestina gat það vitað hvar hennar væri að leita. En svo var fyrirkomulagi siglinganna breytt á þann hátt að siglt var til Lock Ewe á norðvestur-horni Skotlands austan við Hebridseyjar og skipunum safnað þar saman í skipalest. Stundum voru 120 til 130 skip í hverri lest. Lestin var svo oftast látin koma saman í flóanum utan við Liverpool eða ein- hversstaðar á Bristolflóanum. Þaðan var svo siglt suður fyrir Irland og til Bandaríkjanna. Einhvers staðar á miðju hafinu milli Bretlands og Bandaríkjanna tóku kandadiskar korvettur vanalega við af bresku fylgdarskipunum og var gaman að fylgjast með þessum korvettum. Ekki hef ég oft séð jafn snaggaraleg og hraðskreið skip, ekki síst þegar sjór var úfinn. Sama leið var farin til baka — suður fyrir írland og þá upp „írska kanalinn“ sem við kölluðum sundið milli Bretlands og Irlands. Flest skipanna fóru þá inn til Liverpool en þau sem eftir urðu héldu til Belfast á Norður- írlandi. í síðustu og örlagaríkustu för sinni var Dettifoss einmitt í hópi þeirra skipa sem fóru inn til Belfast. Þaðan var skipinu síðan ætlað að fara enn til Lock Ewe og bíða eftir skipalest sem færi til Islands. Segja mátti að yfirleitt tæki hver för skipsins tvo mánuði fram og til baka. Bið var oft löng í Lock Ewe meðan verið var að safna skipum saman, gjarna tíu eða tólf dagar. Við lágum ekki við bryggju heldur við akkeri og var þessi bið því oft harla þreytandi og fátt til dægrastytt- ingar. Lengsta sigling okkar frá Islandi til Bandaríkjanna man ég að var 31 dagur! Oftast komumst við þó á leiðarenda á 21 til 23 dögum. Dettifoss sigldi jafnan til New York og þar vildi viðdvöl líka verða löng — yfirleitt hálfur mánuður. Bæð* tók sinn tíma að afferma skipið og ferma að nýju og svo að bíða eftir næstu skipalest. Einkum var það fryst' ur fiskur sem við fluttum til Ne"' York, en heim var flutt hvers kyr>s nauðsynjavara, einkum matvara. I New York höfðum við nóg fyrir stafni’ fórum í bíó á kvöldin eða á skemmti' staði. Svo var verslað þá daga sem við áttum frí - bæði fyrir sjálfan sig °t> aðra. Mikið var um að fólk bæði okkuf farmennina að kaupa eitt og annað ytra og fannst okkur nóg um, því ekk> var hægt að sinna öllu. Stunduro brostum við að því að ef við keyptum dömuhatta eða hanska brást ekki ^ þetta þótti passa ljómandi vel — enda enginn hægðarleikur að skipta vör- unni. Enn vil ég geta þess að í næst síðustU ferð Dettifoss var öll skipshöfm11 viðstödd minningarathöfn í New York um þá sem farist höfðu með Goðafossi. Yar hún haldin þann U' nóvember 1944 og er mér minnisstætr að þeir fluttu þar minningarorð Thof Thors og Pétur Sigurgeirsson, síðaf biskup, sem þá var við nám vestra- Einkum fannst mér Thor mælast vd við þetta tilefni — en ekki hvarflaði ^ neinum að Dettifossi væru senn but11 sömu örlög og Goðafossi. / 'MA *1 ■ 1'■. i:-i M. YORK GEIR J^GAIRSSOH jl/, • .MtffÍNERv^ ■ <| jfy' OCCUPAftlðt^ | / , ‘yí MifTO J ^ ídJil rM. VAUOAfyD-UNITBO JaHCAST 1LV-1 U ."ÍOTH COvFaSv.' Landgöngupassi Geirs J. Geirssonar. Hann er dagsettur pa,,>l 11. nóvember 1944, en þá var áhöfh skipsins viðstödd mit>rl ingarathöfh um þá sem farist höfðu með Goðafossi. 50 SJÓMANNADAGSBLAgl^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.